Er Alþingið orðið að Nasistaflokki?

Spurning greinarinnar kann kannski að vera mjög hörð, og áður en lesandi þessara greina brjálast yfir þessari skrítnu spurningu, þá langar manni að reyna í bestu getu í þessari grein að útskýra nánar af hverju maður leggur fram þessa ógnvænlega spurningu fram, sem er: „Er Alþingið orðið að Nasistaflokki?“. Því aðal ástæða greinarinnar er ekki að leitast eftir að særa einhvern, heldur aðallega að upplýsa hvernig ástand Alþingisins er orðin graf alvarleg gagnfart stöðu aldraðra og öryrkja sem hafa verið hundsuð af meirihluta þingmanna sem svívirðilega hafa stundað einelti á aldraða og öryrkja alveg síðan að fyrrverandi forsætisráðherra Jóhanna Sigurðardóttir úr flokki „Samfylkingarinnar (xS)“ og Steingrím J. Sigfússonar úr flokki „Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs (xV)“ ákváðu eftir hrunið árið 2009 kvikindislega að margrefsa aldraða og öryrkja með því að skerða launatekjur þeirra, sem og eftir kosningar árið 2013, 2016 og 2017 hefur verið lofað að láta lagfæra þær refsiskerðingar sem „Samfylkingin (xS)“ undir handleiðslu Jóhönnu Sigurðardóttur og sem „Vinstrihreyfinginn – grænt framboð (xV)“ undir handleiðslu Steingrím J. Sigfússonar ákváðu árið 2009 að leggja á herðar aldraðra og öryrkja sem hefur ekki ennþá gerst alveg sama hversu mikið þingmenn árið 2017 ákváðu að útríma alla fátækt á Íslandi, eins og hún Katrín Jakobstóttir söng fagurlega til kjósenda sinna í stefnuræði sinni þann 13. September 2017, þegar hún vitnaði: „Kæru landsmenn. Ég hef áhyggjur af því að þrátt fyrir efnahagslegan uppgang vanti upp á þennan sameiginlega skilning á því hvað felst í samfélagi. ÉG HEF ÁHYGGJUR AF ÞVÍ AÐ OF MARGIR SÉU BEÐNIR UM AÐ BÍÐA EFTIR RÉTTLÆTI. Og af því að spurt er hvað valdi því að fólk geti ekki komið sér ekki saman um einfalda hluti eins og forgangsröðun er rétt að svara þeirri spurningu fyrir mitt leyti: HÉR Á ÍSLANDI ÞARF STJÓRNVÖLD SEM TREYSTA SÉR TIL AÐ ÚTRÝMA FÁTÆKT. Um það hefur ekki verið eining á Alþingi þó að sumir stjórnmálamenn tali eins og hér séu allir sammála um tekjujöfnunarhlutverk skattkerfisins. En við höfum ekki verið sammála um að hlutverk skattkerfis sé að tryggja jöfnuð.“, og alveg síðan að hún komst inn sem forsætisráðherra okkar þjóðar, þá því miður hefur maður ekkert séð þá stefnu rætast sem hún ræddi um í sinni ræðu, að minnstakosti þegar hún vitnaði: „HÉR Á ÍSLANDI ÞARF STJÓRNVÖLD SEM TREYSTA SÉR TIL AÐ ÚTRÝMA FÁTÆKT.“, því alveg síðan að Katrín Jakobsdóttir seldi sálu sína til hjartalausa Sjálfstæðisflokkinn (xD) sem dregur hana á asnaeyranu eins og strengjarbrúðu, þá því miður hefur maður ekkert séð þau loforð koma upp hvenær aldraðir og öryrkjar séu ekki „BEÐNIR UM AÐ BÍÐA EFTIR RÉTTLÆTI“ eins og Kata sjálf vitnaði í sinni stefnuræðu.

Enn þá kann einhver að spyrja: „Hvernig tengist þessi svik þingmanna hvort Alþingið sé orðið að Nasistaflokki?“.

Jú eins og Björgvin Guðmundsson viðskiptafræðingur, fyrrverandi borgarfulltrúi og sendifulltrúi í utanríkisráðuneytinu, og sem hefur í mörg herrans ár margbarist gegn fátæktarstöðu aldraðra og öryrkja, og sem hefur margoft skrifað pistilgreinar í fjölmiðlum, Facebook og á öðrum stöðum, þar sem hann núna fyrir stuttu vitnaði þann 26. Janúar 2019 um alvarleikastöðu aldraðra um svikastarfsemi Katrínar Jakobsdóttur úr flokki (xV) og Bjarna Benidiktssonar úr flokki (xD), þar sem hann vitnar orðrétt: „Á haustmánuðum brast þolinmæði Félags eldri borgara í Rvk, félagið sagði á heimasíðu sinni, AÐ STJÓRNVÖLD HEFÐU SVIKIÐ ELDRI BORGARA. RÉTTLÆTINU VAR ALLTAF FRESTAÐ. Stjórn KJ skipaði starfshóp til þess að fjalla um það hvort hækka þyrfti lægsta lífeyri aldraðra og hvað mikið.

Ég sagði þá, að það þyrfti engan starfshóp, það þyrfti aðgerðir. Allar upplýsingar væru til í félagsmálaráðuneytinu, hjá Félagi eldri borgara og Landssambandi eldri borgara en starfshópurinn var stofnaður og hefur skilað áliti. Hópurinn leggur til, að kjör útlendinga, sem búa hér og hafa ekki full réttindi í TR vegna skertrar búsetu, verði bætt svo og kjör Íslendinga, sem búið hafa lengi erlendis og njóta ekki fullra réttinda í TR vegna skertrar búsetu.

Félagsmálaráðherra tilkynnti í gær, að kjör þessara aðila yrðu bætt EN RÉTTLÆTI ANNARRA ELDRI BORGARA, SEM EKKI HAFA NÓG FYRIR FRAMFÆRSLU VERÐUR ÁFRAM FRESTAÐ. Hvaða rugl er þetta? Á áfram að draga eldri borgara á asnaeyrunum, kannski eitt ár í viðbót? Það er ágætt að hugsa til útlendinga, sem hafa ekki full réttindi í TR og Íslendinga, sem dvalist hafa langdvölum erlendis og eru af þeim sökum í sama bát og útlendingarnir en það þýðir ekki að gleyma eigi öllum hinum sem alltaf hafa búið á Íslandi og ekki hafa neinn lífeyrissjóð af ýmsum ástæðum. Þeir eiga sama rétt og útlendingarnir og ekki síðri. Þeir þurfa leiðréttingu strax. Ekki seinna.“

Sem sýnir í þessari vel vandaðri skrift Björgvins Guðmundssonar, að okkar nýjasta Nasistastefna þessara hjartalausra þingmanna er jú að þau ætla sér ennþá í einelti að láta  „RÉTTLÆTI ANNARRA ELDRI BORGARA, SEM EKKI HAFA NÓG FYRIR FRAMFÆRSLU VERÐUR ÁFRAM FRESTAГ, eins og það er orðað í hans skrift, sem má líka búast við því að réttlæti annarra öryrkja sem ekki hafa nóg fyrir framfærslu til að geta lifað mannsæmandi lífi verði líka áfram frestað, þótt að þessi vissa grein sem hann skrifaði snúist aðallega um stöðu eldriborgara, þá má samt búast við því að öryrkjar séu líka í þessari hræðilegri eineltistöðu eins og eldriborgarar eru núna á okkar dögum. Sem því miður, líkist orðið Nasistastefnu þingmanna sem vilja ekki útríma fátækt, heldur vilja þau útríma aldraða og öryrkja með því að vilja ekki leiðrétta þá kvikindisskerðingar sem lagt var á þau fyrir tæp 10 árum síðan. Þannig að aðal flókna og langa erfiða stóra spurningin er: „Hvenær mun Alþingi okkar þjóðar hætta að níðast eineltislega á þennan hóp sem getur ekki varist þeirra kvikindaskap að vilja ekki leiðrétta launatekjur aldraðra og öryrkja eins og þau lofuðu á kosningarárunum 2013, 2016 og 2017 að þau ætli sér að leiðrétta þær alvarlegu skerðingar sem lagt var á herðar aldraðra og öryrkja árið 2009, er ekki þessi fátækasti hópur Íslands búin að þurfa þola alveg nóg af þessu eineltisníði þingmannanna sem margsinnis hafa lofað því að bæta upp tekjur þessa fátæka hóp eða á þessi hópur bara endalaust að bíða eftir réttlætinu, því er ekki orðið alveg nóg komið af þessu eineltisníði sem þessir vissir þingmenn endalaust láta aldraða og öryrkja bíða eftir réttlætinu, og hversu lengi þarf sá hópur síðan að bíða eftir því réttlæti þegar það hefði alveg verið hægt að lagfæra þennan vanda strax, gjarnan væri ef einhver heilvitur þingmaður geti nú svarað þessari mjög erfiðu og vandræðislegu flóknu spurningu, því eruð þið mínir kæru þingmenn sjálf tilbúinn til þess að fórna ykkar milljóna króna mánaðarlaunum sem við skattgreiðendur erum að borga ykkur og byrja að lifa á tæp 209.000 krónum mánaðalega án einhverra annarra aukabóta sem aldraðir og öryrkjar eru því miður pínlega má orðið segja daglaga þurfa að lifa á betli eftir því að geta lifað út mánuðinn á þessu rokdýra Íslandi þar sem flest allar nauðsynjar og húsaleiga er á rándýru verði sem étur strax upp þessar smálúsatekjur sem þessi fátækasti hópur Íslands lifir á án annarra aukabóta?“.

Þannig maður vonar það innilega að þessi grein sé ekki misskilin af neinum sem les hana, enda er það ekki tilgangur skrifanda þessara greinar að leitast eftir því að særa einhvern, heldur aðallega að benda á alvarleika vandans sem margir stórfjölmiðlar því miður fjalla voða lítið um, nema jú kannski á jólunum og á öðrum viðburðum sem fjalla um þennan vanda, en þá aðallega undir smá fréttir, eins og þessi alvarleiki skipti þeim orðið ekkert lengur máli, sem því miður er grátlegt þegar svona alvarleiki er kaffærður niður af þingmönnum sem forðast þess að tala um þetta og líka sumra stórfjölmiðla sem virðast víst ekki hafa áhuga á því að hamra á þessum alvarlega vanda okkar þjóðar. Þannig núna langar manni að ljúka þessari grein, og síðan vonar maður það innilega að réttlætið þurfi ekki lengur að bíða eftir því að útrýming fátæktar verði algjörlega útrýmt, því nóg er komið af öllu þessu kjaftæðisbulli, og farið nú mínir kæru þingmenn að standa við ykkar gefin loforð, enda voruð þið kosinn inná Alþingið til þess að vinna ykkar vinnu við það eitt að standa við ykkar loforð, en ekki til þess að svíkja þau.

Kær kveðja eftir réttlæti og útrýmingu fátæktar,
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).


Bloggfærslur 27. janúar 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband