Bloggfærslur mánaðarins, október 2017

Um stöðu kosninga 2017!

um_sto_u_kosninga_2017.jpg

Jæja núna eru vandræðakosningarnar búnar og niðurstöður þjóðarinnar komnar. Því miður hélt þjóðin áfram að kjósa vandræðastjórnirnar aftur yfir okkur, sem er Sjálfstæðisflokkur þar sem tæp 25,2% ákvað að selja sína sál með sínum atkvæðum og fengu þar með 16 þingmenn inná þing af 21 þingmönnum af síðustu kosningum sem gerir það kleift að þau misstu 5 þingmenn og hefðu nú alveg mátt missa ennþá fleiri þingmenn og jafnvel hefði mátt alveg þurrkast út úr kortinu, en svona sorglega endaði þetta. Og síðan eru það Vinstri grænir þar sem tæp 16,9% kaus þann flokk og misstu þar með 1 þingmann af 11 þingmönnum sem endaði með 10 þingmenn inná þing. Og þar næst á eftir þeim er Samfylkingin þar sem tæp 12,1% kjósenda kaus þann flokk og sem bætti við sig þingmönnum þar sem sá flokkur var með 3 þingmenn síðast en fengu 4 þingmenn núna sem gerir als 7 þingmenn inná þing. Og síðan er það nýi Miðflokkurinn hans Sigmundar Davíðs þar sem tæp 10,9% kaus þann flokk og sem fékk þar með 7 þingmenn inná þing og sem allir landsmenn eru jú víst núna að bíða mjög spennt eftir því stóra kosningarloforð sem hann gaf kjósendum að hann ætli að selja Arion banka og gefa öllum landsmönnum hlutabréf úr þeim banka sem verður spennandi að sjá hvernig honum mun takast það verkefni sem verður bara að koma í ljós hvort hann mun standa við þau loforð eins og hefur sýnt sig þá hefur hann víst átt mjög erfitt með það hlutverk að sína traust vegna þeirra vandræðavantraust sem hann kom sig í á síðustu kosningum. Og síðan er það Framsóknarflokkur þar sem tæp 10,7% kusu þann flokk og sem misstu þar með enga þingmenn sem voru 8 þingmenn á síðasta kjörtímabili. Og þar næst eru það Píratar þar sem tæp 9,2% kusu þann flokk og sem voru með 10 þingmenn á síðustu kosningum en misstu 4 þingmenn á núverandi kosningum sem endaði með 6 þingmenn inná þing. Og síðan er það sá flokkur sem fjölmiðlar voru byrjuð að mála útí horn og sem sagði að sá flokkur fengi enga þingmenn útaf þeim heilaþvottablekkingarskoðunarkönnunum sem var í gangi á meðan kosningarnar stóðu, en síðan þegar loksins þessar kosningar byrjuðu og niðurstöður komu uppúr kjörkassanum, þá kom í ljós að Flokkur fólksins sem fjölmiðlar voru búin að útiloka fékk afgerandi sigur sem nýr stjórnmálaflokkur þar sem tæp 6,9% kusu þann flokk sem endaði með að þau fengu 4 þingmenn inná þing. Og sá síðasti flokkur sem kosin var er Viðreisn þar sem tæp 6,7% kusu þann flokk og sem tapaði 3 þingmenn af 7 þingmönnum sem endaði með 4 þingmenn inná þing.

Sem og gerir það kleift að núna eru tæp 8 flokkar komin inná Alþingi okkar þjóðar eftir þessar kosningar. Þannig útfrá þessu öllu, þá var það Flokkur fólksins sem stórsigraði, vegna þeirra neikvæðu heilavotaskoðunarkannanir sem var farin að mála þann flokk útí horn, þar sem annað kom í ljós eftir kosningar 2017, að sá flokkur vann þann stórsigur að fá 4 þingmenn inná Alþingið, sem verður síðan bara að koma í ljós hvernig þeim flokki mun ganga að standa við sín stórloforð sem þau gáfu öldruðum og öryrkjum sem er jú aðal baráttumál Flokk fólksins að kjör þeirra sem lifa í fátækt verði lagfært sem fyrst. Þannig núna eru víst flokkarnir orðnir 8, sem er víst í fyrsta sinn í Alþingissögunni að svona margir þingflokkar séu inni á Alþingi, sem mun gera það mjög erfitt fyrir þingflokka að geta sameinast um það hverjir vilja vinna saman. Því nákvæmlega eins og staða þingflokka er núna kominn í, þá er spurning hvort flokkarnir vilja sameinast Sjálfstæðisflokknum sem Viðreisn og Björt framtíð gerðu á síðustu kosningum sem endaði með því að þeir flokkar slitu samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn og Viðreisn varð að endanum að kalla eftir kosningar útaf því klúðri sem Sjálfstæðisflokkurinn var búin að koma sig í útaf uppreisn æru hneykslismálið sem sá flokkur vildi leyna og þagga niður með því að vilja ekki veita fórnarlömbum þeirra barnaníðungamálsupplýsingar í þeim skammarmálum. Þannig maður vonar það innilega að nýi flokkurinn Flokkur fólksins fari nú ekki að sameinast Sjálfstæðisflokknum, því það má bóka það að ef Flokkur fólksins muni sameinast Sjálfstæðisflokknum, þá muni Flokkur fólksins ekkert komast inn með sín málefni eins og þegar Viðreisn og Björt framtíð sameinuðust Sjálfstæðisflokknum og gátu þar með ekkert komið sínum málum fram sem sýndi sig þegar þau höfnuðu leiðréttingar til aldraðra og öryrkja eins og Sjálfstæðisflokkurinn vildi að þau gerðu, sem endaði víst með því að á þessum kosningum þá margrefsuðu kjósendur Bjarta framtíð sem fékk ekki að komast aftur til valda og Viðreisn missti þó nokkuð af sínu fólki útaf því að þau höfðu sameinast Sjálfstæðisflokknum sem kann ekki að hugsa um hag allra þeirra sem skulu vera jafnir. Þannig varið ykkur kæru flokkar sem núna hafið komist til valda, að reyna ekki að sameinast Sjálfstæðisflokknum, nema þið viljið að við kjósendur kjósum alltaf 1 sinni á ári, þá er það ykkar fórn og stórhöfuðverkur að sameinast Sjálfstæðisflokknum sem vinnur ekki eftir hagsmuni allra þeirra sem skulu vera jafnir, og síðan ætti nú Viðreisn að hafa lært af sinni reynslu að hafa unnið með Sjálfstæðisflokknum sem sá til þess að Viðreisn gat ekkert komið sínum málefnum fram, vegna þeirra stórmistaka að hafa sameinast þeim flokki sem kann ekki að vinna fyrir alla þá sem skulu vera jafnir fyrir lögum.

Þannig gangi ykkur vel mínir kæru þingmenn sem komust til valda og munið eftir því að ef þið viljið sjá einhverjar stórbreytingar gerast hér á Íslandi, þá ekki sameinast Sjálfstæðisflokknum sem mun kaffæra ykkar stefnu til að byggja upp skárri Ísland, því þannig því miður hefur sá flokkur unnið gegn öllum þeim sem skulu vera jafnir, þannig varið ykkur mínir kæru flokkar sem eruð núna kominn inná Alþingið að gera ekki sömu stórmistökin eins og gerðist útaf kosningum 2016 upp að 2017, nema að þið viljið jú kjósa aftur eftir 1 ár, þá verður því miður að breyta kosningunum á þann hátt að þær verði árlega ef þið flokkarnir viljið hafa það þannig, með því að klúðrast til að sameinast þeim flokkum sem hefur hvað mest komist í klandur útaf hneykslismálum undanfarin ár. Þannig mættu kosningar 2017 sína það að við þurfum ekki að kjósa eftir 1 ár, því nóg er komið af þessu bullruglkosningum að við Íslendingar séum orðið athlægi stórþjóða sem spyrja sig útí það af hverju við vorum að kjósa aftur árið 2017 vegna þeirra hneykslisskandalsþöggunar uppreisn æru og Panamaskattaparadísaþingmönnum sem komust víst því miður aftur til valda útaf þeim sértrúardýrkenda kjósenda sem tilbiðja spillingu, græðgi og sem vilja ekki sjá neinar breytingar gerast í sinni þjóð, sem sýnir sig að núna sitjum við aftur uppi með aflandseyjarskattaparadísarþingmennina sem hefðu strax átt að segja upp sínum þingstörfum eins og margar aðrar þjóðir gerðu þegar það komst upp um þá valdamenn í þeim þjóðum að þau hefðu átt eignir í skattaparadís.

Þannig vonandi verða þessar kosningar aðeins skárri en kosningar 2016, sem verður bara að koma í ljós hvað gerist, því nóg er komið af þessum bull Alþingiskosningum og vonandi munum við kjósa aftur eftir 4 ár, en ekki aftur eftir 1 ár, þannig gangi ykkur vel mínir kæru þingmenn og varist þess að gera ekki sömu mistökin og það gerðist á síðustu kosningum með því að sameinast þeim flokki sem kom því til leiðar að við vorum að enda við að kjósa árið 2017.

Kær vonar kveðja eftir skárri framtíð,
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).


Af hverju að kjósa árið 2017?

kosningar_2017_1315153.jpg

Kosningarárið 2017 er stórspurningarmerki margra sem brennur í hjarta þeirra sem standa á haus og vita í raun og veru ekki hvað á að kjósa. Þess vegna ætlar maður ekki að kjósa eftir bullvinsældaheilaþvottaflokkaskoðunarkönnunum sem segir ekkert til um framtíð allra. Heldur mun maður kjósa fyrir framtíð allra þeirra sem skulu vera jafnir fyrir lögum.

Sem því miður þá hafa mörg stjórnvöld í þó nokkuð mörgum kosningaárum lofað öllum kjósendum fögru, en um leið og þau hafa komist til valda, þá hafa þau stundað þá skammarníðingakúnst að líta framhjá sína kjósendur með þeim ólögum sem hefur margrústað heilbrigðiskerfið, skólakerfið, vegakerfið og stöðu allra þeirra sem lifa í fátæktarláglaunum með því að mjólka um það bil 20% auðmannastétt okkar þjóðar í að stórlækka skatta og vexti á stórhátekjuauðmönnum sem lifa á milljónum og jafnvel milljörðum á mánuði bara með því að stórhækka skatta og vexti á alla þá sem lifa á lúsarlaunum sem gerir það kleift að þau efnaminni hafa ekki getað fengið þann unað og lúxus að geta fengið að sitja við sama borð eins og allir þeir sem eiga jú víst að vera jafnir fyrir lögum sem þessir sömu auðmenn sem lúxusblóðsugu lifa á auðæfum okkar þjóðar og sem styrkja sína stórflokka sem mest hafa komist upp með að fara mjög illa með sína þjóð með milljóna króna bullheilaþvottaskoðunarkönnunum sem margir kjósendur fara því miður mjög mikið eftir án þess að kjósa eftir sinni eigin sannfæringu og óska þar með eftir skárri framtíð fyrir okkur öll sem skulum vera jöfn.

Og allir þeir flokkar sem hafa mest komist upp með að hegða sér á þennan hátt að fara kvikindislega illa með sína þjóð, er því miður Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Björt framtíð eftir að þau sameinuðust Sjálfstæðisflokknum sem hugsar ekki um hag allra, og síðan Framsóknarflokkur og flokkur Sigmundar Davíðs þótt hann sé nú búinn að búa til nýjan flokk þá má ekki gleyma því að hann var í Framsóknarflokknum árið 2013 og 2016 sem stóð sig ekki nógu vel við þau loforð sem hann gaf sínum kjósendum þegar hann var í þeim flokki áður en hann hætti í Framsóknarflokknum og var sem Forsætisráðherra árið 2013 undir stjórnarveldi Sjálfstæðisflokksins eftir að það komst upp um Panamaaflandseyjarbraskið sem Kastljóshneykslisþátturinn fjallaði um árið 2016 þar sem Bjarni Benediktsson og hans faðir voru líka sakaður um að hafa tekið þátt í, og síðan Vinstri grænir og Samfylkingin sem því miður árið 2009 í IceSave kreppunni miklu ákváðu að skerða tekjur þeirra sem minnst áttu og sem stóðu líka fyrir því á þeim tíma að mjólka auðmenn, bankagræðgimenn og svelta heilbrigðiskerfið, skólakerfið og aðra hluti sem margir kjósendur um 10.000 einstaklingar þegar þau misstu húsnæði sín fyrir græðgibankakerfin sem yfirtóku hús þeirra sem fóru mjög illa í IceSave kreppunni miklu.

Þannig í raun þá munu kosningar 2017 aðallega snúast um framtíð okkar allra, þannig kjósum um framtíð allra á Laugardaginn þann 28 Október, en ekki bara um framtíð sumra tæp 20% auðugra græðgidýrkenda eins og hefur tíðkast undanfarnar kosningar þegar stórflokkarnir hafa komist til valda, þá hafa þau því miður margbrotið jafnræðisreglu okkar núverandi stjórnarskráar með því að svíkja þau sem skulu vera jöfn fyrir lögum með því að vilja ekki skipta auð okkar þjóðar til allra þeirra sem eiga þann rétt að geta fengið að lifa í jöfnuð. Þannig ef þú minn kæri kjósandi vilt einhvern tíman lifa í jöfnuð og í skárri framtíð fyrir okkur öll, kjóstu þá ekki eftir bullskoðunarkönnunum sem auðmannastéttin borgar fyrir stóruflokkanna, heldur eftir hag allra þinna barna, fjölskyldna, frændfólks, ættingja og allra þeirra sem eiga að geta fengið þann unað að geta setið við sama borð í að geta fengið að vera jöfn fyrir lögum. Þannig kjósum rétt fyrir framtíð okkar allra en ekki sumra, það er að segja, ef þið viljið einhvern tíma skárri framtíð fyrir okkur öll sem skulum vera jöfn fyrir lögum.

Kær vonar kveðja eftir skárri framtíð,
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband