Bloggfærslur mánaðarins, mars 2011

Hvað vilja þau í "Áfram" já hópnum???

Í morgun (þann 29. mars 2011) setti ég inn mynd inn á spjallvegg "Áfram" hópsins í Facebook og í byrjun þá voru engar athugsemdir settar við þá mynd, enn síðan kom einn sem lagði fram athugsemdir útaf myndinni, og sagði: "Mikið er þetta nú barnaleg framsetning hjá þér Magnús. Fyrir það fyrsta þá er það nú bara þannig að þeir sem eiga stærstu sökina í Icesave málinu berjast einna mest gegn samningum. Þannig rembast þeir eins og rjúpan við staurinn við að mála heimsmynd þar sem þeir eru saklausir allra mála - að það hafi ekki verið þeir sem sköðuðu íslenskt samfélag - heldur ljótir útlendingar!

Dæmi: http://eyjan.is/2009/08/28/sigurjon-arnason-icesave-reikningar-fyrst-nuna-med-rikisabyrgd/

Mér þætti líka gaman að vita hvernig útrásarvíkingar ættu að verða lausir allra mála ef Íslendingar taka ábyrgð á skuldum tryggingasjóðs innistæðueigenda?
Það er nú einu sinni þannig að hrun íslensku bankana er með stærstu gjaldþrotum heims - og icesave innistæðurnar eru bara lítill hluti. Ég er nokkuð viss um að eigendur almennra krafna sækji það áfram stíft að útrásarvíkingar borgi."

Og ég svaraði hans ummæli, sem því miður "Áfram" já hópurinn tók í burtu. Því eftir þeim ummælum, þá kom einn sem svaraði: "Magnús ertu ekki að villast eitthvað ?? Rökin þín halda ekki vatni! Helduru virkilega að einhver kjósi eftir því sem að Sigurjón Árna segir eða Bjöggi Thor ?? Mér sýnist þú vera bjálfi!!" og þar með svaraði ég þeim ummælum: "(Nafn einstaklings ekki byrt. Enn partur af svarinu til hans, er) - Bjálfi er sá sem segir annann vera bjálfa. Og ég var..." þar með endar þau ummæli því ég afritaði þennan texta frá Facebook spjallsíðunni minni og eftir þessi ummæli, hurfu öll skrif mín á spjallvegg "Áfram" hópsins.

Enn hvaða mynd var þetta sem ég setti inn á spjallvegg "Áfram" hópsins?

ja_folk_icesaves.jpg


Og af hverju líkar "Áfram" hópurinn ekki við þessa mynd sem ég setti inn og þau skrif sem ég skrifaði? Því þegar þau tala um ástæður þess að við eigum að taka á okkur ábirgð og borga Icesave, þá nota þau slagorðsmyndir sem segir til hverjir það eru sem segja "Já" við Icesave. Þannig er þeirra barátta við ástæðu þess að við eigum að borga skuldir einstakra einstaklinga sem skuldsettu þjóð sína í efnahagskreppu. Og þegar maður talar um staðreyndir, þá vilja þau ekki hafa það inn á sínum vegg. Því sannleikurinn fyrir þeim, er dýrkeyptur og það getur skaðað málstaðinn ef fólk segir staðreyndir um Icesave. Þess vegna tel ég að ástæðan fyrir því að þau tóku öll mín ummæli í burtu, er útaf því að ég vitnaði í staðreyndir þess að við ættum frekar að segja: "Nei, Icesave!!!" og sækja skaðamál þjóðar okkar til dómstóla, enn að taka á okkur þá áhættu að skuldbinda kynslóðir okkar í skuldaþrælkun.

Þannig spurningin er: Hvað vilja þau í "Áfram" já hópnum??? => Facebook síða hópsins

Kær kveðja frá ykkar einlæga vin,
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).


Sendur tölvupóstur út frá spurningum "Áfram" já hópsins og svar

Í morgun (þann 27. mars 2011) skoðaði ég vefsíðu "Áfram" já hópsins. Og þegar ég las þeirra ástæður fyrir "Já, Icesave" þá brá mér mjög í brún og fór að skrifa tölvupóst til advice.is og kjosum.is um svar við þessar spurningar, og svona hljóðar tölvupósturinn sem ég sendi til advice.is og kjosum.is:

[Hér fyrir neðan eru spurningar og svör sem "Áfram" já hópurinn leggur fram til svara um ábyrgð Icesaves. Eru þessar spurningar og svör rangfærðar til blekkinga eða eru þetta staðreyndir sem þau fara með? Ef svo, getið þið útskýrt þær spurningar og svör sem "Áfram" já hópurinn fer með, undir rauð-skáletruðu orðunum sem ég setti inn til spurninga, sem og ég velta mér fyrir hvort séu staðreyndir eða blekkingar.

Gott væri að fá svör frá ykkur um þessar spurningar og svör sem "Áfram" já hópurinn leggur fram.

Af hverju á ég að taka á mig skuldir einkabanka?
Þú ert ekki að því. Þann 9. apríl segjum við já við samkomulagi um að eignir þrotabús gamla Landsbankans gangi upp í skuldbindingar Tryggingasjóðs innstæðueigenda og fjárfesta vegna lögbundinna lágmarkstrygginga á sparifé fólks í öllum útibúum bankans. Bresk og hollensk stjórnvöld greiddu þarlendum sparifjáreigendum út þar sem eignir TIF dugðu ekki. Sem stofnandi og bakhjarl TIF ábyrgist ríkissjóður aðeins vaxtagreiðslur og uppgjör ef eitthvað verður enn ógreitt af skuldbindingum sjóðsins þegar búið er að borga út úr búinu 2016.

Afhverju á að semja um kröfur sem ekki eiga stoð í lögum?
Eftirlitsstofnun EFTA sem hefur það hlutverk að framfylgja lögum og reglum á EES svæðinu hefur þegar gefið út það álit að Ísland beri ábyrgð á því að íslenska innstæðutryggingakerfið getið staðið við lögbundna lágmarkstryggingu sparifjáreigenda í öllum útibúum íslensku bankanna. Sömu sjónarmið hafa komið fram af hálfu allra þeirra vinaþjóða sem skilyrtu fjármögnun og stuðning við að samið yrði um lausn þessa deilumáls. Íslenskir lögmenn sem skiluðu fjárlaganefnd áliti voru ósammála um lagalega stöðu málsins og hæstaréttarlögmenn sem lögðust gegn fyrri Icesavesamningum telja að áhætta og kostnaður sé í slíku lágmarki að það sé mun meiri áhætta fólgin í dómsmáli en því að semja.

Ræður Ísland við að borga samninginn?
Já. Allar fullyrðingar um yfirvofandi gjaldþrot vegna þessa samnings eru hræðsluáróður og þarf ekki annað en bera stærðirnar í honum saman við annan kostnað vegna hruns bankakerfisins til að átta sig á því. Fari allt á versta veg inniheldur samningur fyrirvara til að varnar. En langmestar líkur eru á því að þrotabúið geri meira en að standa undir öllum höfuðstól skuldbindingar Tryggingasjóðs innstæðueigenda svo ekki komi til neinnar ríkisábyrgðar vegna hans. Þrotabúið á nú þegar reiðufé og forgangsskuldabréf upp á 677 milljarða kr. sem er rúmlega helmingur allra forgangskrafna. Aðrar eignir eru til varúðar metnar á innan við þriðjung af nafnverði.

Af hverju eiga börnin mín og barnabörnin að borga?
Ef þú segir JÁ í kosningunum 9. apríl, þá kemur þú í veg fyrir að komandi kynslóðir þurfi að greiða svo mikið sem eina krónu vegna Icesave. Gert er ráð fyrir því í samningnum sem kosið verður um að málið verði endanlega úr sögunni árið 2016. Ef við segjum hins vegar nei við samningnum, þá erum við að vísa málinu frá okkur og taka stórkostlega áhættu fyrir hönd barnanna okkar og barnabarna.

Vefslóð "Áfram" já hópsins => http://afram.is/spurt-og-svarad/

Og sjálfur langar mig að spyrja: "Ef þetta er blekkingar, er þá Áfram hópurinn ekki að brjóta lög með þessum blekkingum, með því að gefa fram rangar upplýsingar til kjósenda Icesaves? Og ef þetta er rangar upplýsingar, getið þið stoppað þær?".]

Og hér eru svörin sem ég fékk frá Samstöðu Þjóðar gegn Icesave:

[Af hverju á ég að taka á mig skuldir einkabanka?
Engar gildar röksemdir hafa verið færðar fyrir ríkisábyrgð á Icesave-reikningum Landsbankans. Samkvæmt Tilskipun 94/19/EB var ríkissjóði gert að koma á fót innistæðu-trygginga-kerfum, einu eða fleirrum. Jafnframt var tekið skýrt fram að ríkisábyrgð á tryggingasjóðunum er bönnuð.
Landsbankinn var með tvöfaldar innistæðu-tryggingar fyrir Icesave. Tryggingasjóðurinn í Bretlandi FSCS og DNB í Hollandi báru fulla ábyrgð á öllum tryggingum vegna Icesave, þar á meðal lágmarkstryggingu ESB jafnframt TIF. Þessir sjóðir greiddu þær innistæðu-bætur sem þeim bar að greiða.

Af hverju á að semja um kröfur sem ekki eiga stoð í lögum?
Rangar kröfur verða ekki réttar vegna þess eins að margir aðilar halda þeim fram. Það þarf fólk með þrælslund að fallast á ranglátar kröfur, sem fela í sér efnahagslegar byrgðar auk fullkominnar niðurlægingar þjóðarinnar. Samningaleið ríkisstjórnarinnar felur í sér afsal lögsögu landsins í hendur Bretlands og Hollands. Afsalið er fullkomið, því að bretum og hollendingum er gefið sjálfdæmi varðandi Icesave-málið allt og allt sem því tengist. Engin þjóð hefur afsalað sjálfstæði sínu á þennan hátt, í gervallri mannkynssögunni.

Ræður Ísland við að borga samninginn?
Enginn getur svarað því hversu hár Icesave-reikningurinn verður, ef Icesave-lögin verða samþykkt. Hvort sem reikningurinn verður tugir milljarða eða hundruð milljarða verður algerlega háður utanaðkomandi aðstæðum. Í öllum tilvikum verður Icesave-klafinn þyngstur þeim sem síðst skyldi, það er að segja lægst launaða fólkinu í landinu. Þeir sem mæla Icesave-lögunum bót, vita að klafinn mun ekki lenda á þeim sjálfum af verulegum þunga.

Af hverju eiga börnin mín og barnabörnin að borga?
Icesave-kröfurnar verða fyrst alvarlegar þegar þær hafa öðlast lögvarða stöðu, með JÁ í þjóðaratkvæðinu. Fram að þessu hefur Icesave-málið verið á Dómstólaleiðinni og sú leið hefur gefist okkur vel. Með NEI sigri í þjóðaratkvæðinu, höldum við áfram á Dómstólaleiðinni og getum varið okkur með lögsögu Íslands.
Hægt er að færa stærðfræðileg rök fyrir því að líkur fyrir sakfellingu í hugsanlegum dómsmálum eru nær óendalega litlar. Hinn kosturinn er Icesave-samningarnir, sem munu leiða samstundis til greiðslu tuga milljarða, sem falla algerlega utan við útgreiðslur úr þrotabúi Landsbankans. Vaxta-kröfur mæta ávallt afgangi við uppgjör þrotabúa og JÁ í þjóðaratkvæðinu mun því örugglega merkja, að álögur verða lagðar á alla Íslendinga, þar á meðal börn, barnabörn og barnabarnabörn.

http://kjosum.is/spurt-og-svarad].

Hvaðan fá þeir frá já hópnum þessar upplýsingar sem þau fullyrða til kjósenda sinna, manni þætti gaman að fá að vita það???

Stöndum nú saman kæra þjóð og fellum Icesave, því við skuldum ekki þessar skuldir, og alveg sama hvað já hópurinn segir, þá segi ég: "Nei, Icesave!!!". Enn þú???

Kær kveðja frá ykkar einlæga vin,
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).


Hinn ófyrirgefanlegi glæpur Íslandsögunar!!!

Þeir sem vilja borga; borgið þá. Enn látið þá sem segja "Nei!!!", í friði, því við skuldum ekki þessar glæpaskuldir og þar með neitum að borga upp þeirra glæpaverk sem hinir spilltu græðgimenn gerðu þjóð sinni sér til skemmtunar og okkur til skammar og sem skammast sín ekkert fyrir þau afbrot sem þeir gerðu sinni eigin þjóð.

Að segja "já" við þeirra glæp og láta afkomendur okkar framtíðar kynslóða borga upp þeirra skaðræði án þess að sækja skaðamálið til dómstóla, yrði mesti glæpur veraldar sem þjóðin mun bera á herðar sér það sem eftir er af þeirra lífi. Og að skuldsetja börn framtíðarinnar, yrði mesti glæpur barnaþrælkunar sem framið yrði ef Icesave fer ekki til sinna föðurhúsa — til dómstóla.

Betra er að láta dæma sig til þess að borga skuldir sem maður skuldar ekki, enn að semja um það að maður vilji borga upp glæpi sem maður framdi ekki. Þess vegna er "Nei!!!" besta lausnin, því þá getur maður sagt við sína afkomendur með hreina samvisku að: "Við sóttum fram réttar okkar, enn vorum neydd og dæmd í skuldaþrælkun af dómstólum til þess að borga upp þeirra glæpi." Enn síðan veit maður ekkert hvort við töpum eða vinnum, og "ef" við myndum tapa; þá myndum við hvort eð er vinna. Því við munum þó hafa þá hreina samvisku til afkomendur framtíðar okkar að við sóttum réttar okkar, enn vorum dæmd óréttlátan dóm af græðgivaldinu. Því miður þá er þetta ekki okkar byrgðar, en ef þessar byrgðar yrðu þvingaðar á okkur, þá er það glæpur þeirra sem þvinguðu þessar byrðar á okkur, enn ekki okkar glæpur. Við skuldum ekki Icesave, því það eru ekki til nein lög sem segja það; enn ef þjóðin samþiggir Icesave, þá verða þau lög til. Að sækja fram rétt sinn, er besta lausnin; kjósum rétt.

Kær kveðja frá ykkar einlæga vin,
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).

Ný Icesave könnun. 56 prósent með en 44 prósent á móti  (Titilhaus úr fréttavef eyjan.is)
 
falid_vald.jpg
http://www.vald.org/ — Vefslóðsíðan að "Falið Vald".

Hvað er rétt og hvað er rangt???

Það er orðið mjög algengt þegar talað er um Icesave, að sagt er, að við þjóðin (þar með talið börnin) séum skuldendur þessara reikninga sem útrásarvíkingarnir sköpuðu í útibúi Bretlands og Hollands. Enn er það rétt, eða hvað er rétt og hvað er rangt???

Erfið saga í hnotskurn
Ef maður skoðar söguna í þessu hundleiðinlega máli, mjög gaumgæfilega. Þá byrjar ferill málsins 10. Október 2006 sem netbanka vörumerki innlánsreikninga í eigu Landsbankans í útibúum London, og síðar meir í maí 2008 í Hollandi. Í fréttavef Markaðarins þann 11. október 2006 birtist eftirfarandi grein, sem hljóðar svo:

Sækja sér bresk innlán
sigurjon_rnason_bankastjori_1071409.jpgLandsbankinn kynnti í gær nýja innlánsvöru í Bretlandi undir nafninu Icesave. Um er að ræða sérsniðna sparnaðarleið ætlaða breskum almenningi sem eingöngu er aðgengileg á netinu. Lágmarksinnistæða á Icesavereikningi verður 250 pund og hámarksinnistæða ein milljón punda. Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri Landsbankans, segir þetta lið í því markmiði bankans að breyta samsetningu heildarfjármögnunar bankans og auka vægi innlána þar. „Það sem er sérstakt við Icesave er að við lofum föstum lágmarksviðmiðunum allt til ársins 2009 miðað við ákveðna grunnvexti sem breski seðlabankinn ákvarðar og verðum þar að auki í hærri enda þeirra vaxta sem er verið að bjóða hér.“ Landsbankinn hefur verið á breska innlánamarkaðnum í þrjú ár og heildarinnlán þar nema nú rúmum 200 milljörðum króna, bæði frá einstaklingum og fyrirtækjum.

Á árinu 2007 urðu Icesave-reikningar svo vel teknir, að pundin streyma inn og vinsældirnar svo miklar á meðal Breta að viðskiptavinirnir voru orðnir rúmlega 100.000 talsins, og tæp ári síðar urðu vinsældirnar fleiri en allir Íslendingar, eða um 350.000 talsins. Og á sama ári tók Íslenski hlutabréfmarkaðurinn að falla saman og hefðbundnar fjármögnunarlínur að bresta. Enn á meðan, þá voru Icesave-reikningarnir á þessum tíma helsti styrkur Landsbankans.

Enn í janúar 2008 var útlitið orðið svart hjá Íslensku bönkunum og eftirlitsaðilar í Bretlandi að verða áhyggjufullir. Ekki vegna þess að Icesave-reikningarnir voru í útibú Landsbankans í Bretlandi, heldur útaf því að bankinn var ekki dótturfyrirtæki. Og þótt áhyggjurnar voru, þá stofnsetu þeir í maí 2008, Icesave-innlánsreikninga í útibú Landsbankans í Hollandi. En í ágúst 2008 fara fjárhæðir að safnast inn á Icesave-reikningana í Hollandi og Bretlandi. Og forsvarsmenn Landsbankans funda með seðlabanka-stjóra Hollands sem voru farnir að hafa miklar áhyggjur af stærð reikninganna. Og í september 2008 fara miklar hamfarir að einkenna fjármálamarkaði, eða eins og Briet Konráðsdóttur frá Háskóla Íslands orðar það í BA-ritgerð sinni í júní 2009: "Mánudaginn 15. september 2008 varð bandaríski fjárfestingabankinn Lehman Brothers gjaldþrota. Lehman Brothers hafði verið stærsti fjárfestingabankinn í Bandaríkjunum og gjaldþrotið þar með það stærsta í sögunni. Féllu bankar í hrönnum eftir það um allan heim. (BA-ritgerð, síða 4)".

502164_1071413.jpgOg á þessu tímabili fara forsvarsmenn Landsbankans að segja að innistæðurnar á Icesave-reikningum væru öruggir og íslensk stjórnvöld myndu styðja íslenska tryggingasjóðinn reynist þess þörf. Og í fréttavef Morgunblaðsins, þann 27. október 2008, segir: "Sögðust myndu styðja Tryggingasjóð innlána - Íslensk stjórnvöld lýstu því yfir við bresk stjórnvöld í byrjun mánaðarins að þau myndu styðja við Tryggingasjóð innlána þannig að hann gæti greitt breskum sparifjáreigendum lágmarksbætur ef Landsbankinn færi í þrot. [...]" og á sama fréttavef, þann 23. júní 2009, segir: "Sögðu ríkið ábyrgjast Icesave - Þáverandi bankastjórar Landsbankans, Sigurjón Þ. Árnason og Halldór J. Kristjánsson, sendu bréf til hollenska seðlabankans (DNB) og Fjármálaeftirlitsins (FME) þann 23. september síðastliðinn þar sem þeir sögðust hafa vissu fyrir því að íslenska ríkið myndi ábyrgjast lágmarksinnstæður í íslenskum bönkum. [...]".

2011_1071414.jpgOg 7. október 2008 tekur Íslenska Fjármálaeftirlitið (FME) yfir Landsbankann á grundvelli neyðarlaga sem Alþingi  hafði samþykkt þann 6. október 2008 og þar með varð Icesave-reikningum í Bretlandi og Hollandi lokið. Heildarinnstæðurnar á þessum tíma námu þá um 1.544 milljörðum Ísl. kr. Seina meir þrýsta Hollensk og Bresk stjórnvöld að lágmarksinnstæðuvernd reikninganna yrðu tryggðar. Og daginn eftir, þann 8. Október beita Bresk stjórnvöld undir handleiðslu Gordon Browns hryðjuverkalög á Ísland til þess að frysta eignir Landsbankans, eða eins og fréttavefur Morgunblaðsins orðar það, þann 8. október 2008, að: "Hryðjuverkalögum beitt gegn Landsbanka - Bresk stjórnvöld beittu lögum um varnir gegn hryðjuverkumlög um varnir gegn hryðjuverkum, glæpum og um öryggismál, sem sett voru eftir hryðjuverkaárásirnar á Bandaríkin 11. september 2001. [...] FT segir að eftir að Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, hótaði  Íslendingum lögsókn í morgun ef þeir stæðu ekki við skuldbindingar sínar þegar þau ákváðu að frysta eignir Landsbankans á Bretlandseyjum vegna greiðsluþrots netbankans Icesave. [...] Um er að ræða um tryggingar á innlánum Icesave, virtist ástandið í samskiptum þjóðanna vera komið á svipað stig og í þorskastríðunum á síðustu öld.". Og vikuna eftir kemur eftirfarandi grein úr fréttavef DV, þann 20. nóvember 2008, að: "Hryðjuverkalög út af óeðlilegu fjárstreymi frá Bretlandi - Geir H. Haarde forsætisráðherra sagði á Alþingi í dag að hann teldi að Bretar hafi beitt hryðjuverkalögum á Íslendinga vegna gruns um að íslensku bankarnir hefðu flutt fjármagn milli landa með óeðlilegum hætti skömmu fyrir hrun þeirra. [...]". Og ári síðar í fréttavef Morgunblaðsins, þann 27. febrúar 2009, segir: "Hryðjuverkalög vegna samtals Árna við Darling - Hryðjuverkalögum var beitt gegn Íslendingum vegna samtals Árna Mathiesen, þáverandi fjármálaráðherra, við fjármálaráðherra Breta, Alistair Darling, hinn 7. október síðastliðinn. Þetta staðfesti breski fjármálaráðherrann á fundi fastanefndar breska þingsins um fjármál hinn 3. nóvember síðastliðinn. [...] Michael Fallon, þingmaður breska Íhaldsflokksins, spurði Darling á fundinum hvað hefði valdið því að hann hefði sagt við BBC Radio hinn 8. október: „Íslensk stjórnvöld, hvort sem þið trúið því eða ekki, sögðu mér í gær að þau ætluðu sér ekki að virða skuldbindingar sínar hér.“ Í svari Darling vísar hann í samtal sitt við Árna í kjölfar setningar neyðarlaganna á Íslandi þar sem hann hafi spurt Árna hvort lögin fælu í sér að sparifjáreigendum yrði mismunað á grundvelli þjóðernis. Árni hefði sagt svo vera og að hann teldi það ekki brjóta í bága við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið (EES). [...]".

Og í desember 2008 ályktar Alþingi þess efnis að fela stjórnvöldum að gera samninga vegna innstæðureikninga á EES-svæðinu. Gert var samkomulag við Bresk og Hollensk yfirvöld um lántöku hjá ríkjunum til að Ísland gæti tryggt lágmarksinnstæðuvernd.

Og í júní 2009 var gengið frá samningum við Breta og Hollendinga vegna Icesave-málsins eftir rúmlega hálfs árs viðræður. En í Júlí 2009 varð ekki nægur meirihluti fyrir samningunum um ríkisábyrgð og þá hafði Alþingi haft málið til umfjöllunar allt það sumar. En fjárlaganefnd vann þá á þessum tíma í tíu vikur að því að ná sátt um frumvarpið. Sem endaði á þann hátt, að í ágúst 2009 samþykkti Alþingi frumvarp frá fjármálaráðherra um ríkisábyrgð vegna Icesave-skuldanna með þeim fyrirvara að ríkisábyrgðin myndi taki gildi ef Bretar og Hollendingar myndu sætta sig við þá fyrirvara sem settir voru. Og í september 2009 staðfesti Forseti Íslands lögin um ríkisábyrgð á lánum Tryggingarsjóðs innistæðueiganda og fjárfesta frá Breska og Hollenska ríkinu með áritaðri tilvísun til fyrirvara Alþingis. Og í október 2009 undirritar Fjármálaráðherra sérstakan samþykktar- og viðaukasamning Íslendinga, Breta og Hollendinga vegna Icesave-samkomulagsins. Icesaving, samtök Hollenskra innistæðueigenda Icesave-reikninga, kæra Fjármálaeftirlit (FME) til Eftirlits-stofnunar EFTA í Brussel vegna stofnunar Nýja Landsbankans á grundvelli neyðarlaganna. En í desember 2009 hafði Alþingi samþykkt Icesave-lagafrumvarpið með 33 atkvæðum gegn 30.

Enn í lok ársins 2009 og byrjun 2010 mótmælti meirihluti þjóðarinnar Icesave og þar með synjaði Forseti Íslands Icesave-lögunum staðfestingar eftir að hafa fengið í hendur áskorun InDefence-hópsins með um tæplega 60.000 undirskriftir [**].

Staðreyndir => Útfrá sögu þessa máls, þá byrjuðu Icesave atburðirnir í Bretlandi, London... Því næst fara þeir til Hollands, með þá viðvörun að netreikningarnir eru ekki í dótturfyrirtæki... Í Bandaríkjunum kemur upp heims gjaldþrot Lehman Brothers, enn á meðan segja Sigurjón Þ. Árnason og Halldór J. Kristjánsson að Íslensk stjórnvöld myndu styðja fall Íslensku bankana... Þegar bankarnir féllu, fékk Ísland hryðjuverkalög frá Árna Mathiesen undir handleiðslu Gordon Browns útaf misskilningi Alistair Darlings...  Og eftir þær hamfarir hafa Icesave I, II & III verið búnir til... Enn hvar var boðið uppá dómstólaleiðina í þessu kjaftæði???

Það er nefnilega spurningin; hvenær fær þjóðin réttlæti? Ef þjóðin segir "Já!" við þessar staðreyndir, hvað er þá rétt og hvað er þá rangt í þessu öllu saman. Því þá er maður orðinn hræddur um, að það er eitthvað stórlaga að. Því ef maður lendir í órétt, er þá ekki þannig með farið að maður sækir eftir rétt sínum, og ef "Jáið!" kemur upp, er maður þá ekki búinn að afsala þeim rétti, sem þýðir, þá verður aldrei dæmt í þessu máli???

Ef þjóðin vill réttlæti, sækjum rétt okkar og sendum málið til dómstóla, og segjum: "Nei!!!" þann => 9. apríl 2011.

Kær kveðja frá ykkar einlæga vin,
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).

Handrukkarar hræðsluáróðurs enn að störfum!!!

Þann 16. mars 2011 rakst maður á tvær netfréttir frá eyjan.is og DV.is um hótunarskoðanir 8 lögfræðinga til þjóðarinnar gagnfart  Icesave samningunum sem og gjallhornspennar fjölmiðlanna skrifuðu, að "Átta lögmenn: „Dýrkeyptur glannaskapur“ að hafna samkomulagi um Icesave (titilhaus úr eyjan.is)" og "Dómstólaleiðin felur í sér alvarlega áhættu (titilhaus úr DV.is)" og í þessum greinum er vitnað, að "Við höfum engan rétt til þess að leika okkur að efnahagslegri framtíð barna okkar með því að halda áfram að þykjast ósigrandi og geta boðið hvaða aðstæðum sem er byrginn. Sá hugsunarháttur hefur þegar kallað yfir okkur eitt hrun og við megum ekki við öðru." og þeir sem undir þessar grein rituðu eru lögmennirnir Garðar Garðarsson, Gestur Jónsson, Guðrún Björg Birgisdóttir, Gunnar Jónsson, Jakob R. Möller, Lára V. Júlíusdóttir, Ragnar H. Hall og Sigurmar K. Albertsson. Sem og þau ættu að sjá sér þá skömm og sóma til þess að biðja þjóðina afsökunar að hafa lagt fram þessar hræðsluógnir til þjóðar sinnar, til þess eins að verja málstað Icesave spillingarinnar sem útrásarvíkingarnir skelltu á okkar þjóð.
 
Því alveg síðan að þetta kjaftæði byrjaði, þá hefur þjóðin þurft að lenda í einelti og hótanir gagnfart þessum samningum, að ef þjóðin segir ekki "Já!!!" og samþiggir, þá mun hitt og þetta koma yfir þjóðina. Því þegar maður sast við sjónvarpskassann til að horfa á Stöð 2 fréttir þann 17. mars 2011* þá var það eina sem maður heyrði var skoðun eins af lögfæðingunum 8 sem vældi til þjóðarinnar að við verðum að segja "Já!!!" og ef við gerðum það ekki þá gæti það skaðað málstað samningsferlisins og þeirra eigin orðspors og þjóðarinnar.

Enn hvað er í samningunum sem Bretar og Hollendingar eiga að fá og um hvað fjalla þeir? Því það eina sem þjóðin er búin að heyra eða lesa, eru ógnir. Þannig það sem samningarnir segja, er stórt spurningarmerki sem þjóðin fær ekkert að vita um. Þjóðin verður bara að treysta samningsaðilum og þá 44 pólitíkusa sem samþiggðu samninganna og þá 33 pólitíkusa sem vildu ekki að þjóðin fengi að hafa síðasta orðið og þótt þjóðin fái ekkert að vita, þá á þjóðin bara að segja "Já!!!" þegjandi og hljóðalaust. Og er þetta það sem þjóðin vill, að samþiggja eitthvað sem enginn veit hvað er? Ég meina fjalla þessir samningar ekki um framtíð okkar kynslóð? Og er það ekki þjóðin sem á að borga upp skaðann sem þessir útrásarvíkingar gerðu sinni eigin þjóð og við búinn að þurfa að eigast við þann skaða sem þessir skaðvaldar gerðu?

Hvernig er saga þessara Icesave samninga? Fyrsti samningurinn sem samin var, var  samþyggtur af Alþingi og Forseta án okkar samþykkta og feldur niður af Bretum og Hollendingum, og er ekki afturkallanlegur. Annar samningurinn var upphrópaður til synjunarvald Forsetans af meirihluta þjóðarinnar til kosninga og var feldur niður af þjóðinni. Þriðji samningurinn var aftur upphrópaður til synjunarvald Forsetans af meirihluta þjóðarinnar til kosninga, og er stórt spurningarmerki hvað mun gerast.

Nú er komið upp á þjóðina að velja og vona maður fyrir hönd þjóðarinnar að hún velji rétt og segi risastórt og feitt "Nei!!!" við Icesave III. Því þessir samningar snúast um okkur og okkar framtíða kynslóð, hvort við viljum skuldbinda okkur og okkar börn til að borga skuldir sem við og börnin skuldum ekki. Köllum eftir réttlæti og synjum þrældómssamninganna fyrir fullt og allt, fyrir framtíðar kynslóð og fyrir rétt okkar til réttlætis. Látum ekki valdspillinguna komast upp með þá blekkingu sem hún hefur stundað og er enn að stunda, til að hóta okkur til að borga það sem við berum enga laga skildu til að borga. Ef þjóðin samþiggir samninganna, þá má skattheimtan rukka okkur og framtíð okkar til þess að borga þær skuldir sem við skuldum ekki, ef þjóðin samþiggir. Enn ef við segjum stórt feitt "Nei!!!" við þessa blekkinga samninga, þá fer þetta óréttlæti rakleiðs til dómstóla og við fáum réttlætið framfilt og þeir sem gerðu þessa Icesave reikninga verða dæmdir. Og það er þess vegna sem þessir hræðsluáróður er búinn að hljóma á meðal okkar, því sökudólgar Icesaves eru dauð hræddir og vilja ekki láta dæma sig fyrir þann hræðilega verknað sem þeir gerðu sinni eigin þjóð og skammast sín ekkert fyrir. Tökum því réttar ákvarðanir og veljum rétt.

Okkar framtíð, okkar val!!!

Kær kveðja frá ykkar einlæga vin,
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).


* Það kemur í ljós ef maður kíkir á fréttavefmiðil Stöðvar 2 á vísir.is, að sú frétt sem fjallar um þennan lögfæðing er ekki lengur til staðar, sem þýðir, að fréttastöðin hefur fengið frekar neikvæð viðbrögð og hefur ekki þorað öðru enn að fjarlægja allar fréttir frá þessum degi  [Vefslóð Stöðvar 2, til þess að athuga dagsetningu].


Að segja "Já" útaf því að maður er orðinn leiður á þessu???

Í veraldarvefnum eyjan.is (15. mars 2011) segir: "Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, hyggst greiða atkvæði með Icesave í kosningunum sem framundan eru. Ekki þó vegna þess að hann telji það rétt heldur vegna þess að hann er kominn með leið á því. Telur Jón það hafa grafalvarlegar afleiðingar að hafna Icesave einn ganginn enn." og á vefslóð t24.is (15. mars 2011) segir: "Ég ætla að greiða atkvæði með því, ekki vegna þess að ég skilji það eða ég telji að það sé rétt, heldur er ég einfaldlega orðinn frekar leiður á málinu. Ég ætla að kjósa það í burt.".

Auðvitað má hann eins og margir hafa skoðanir. Enn þar sem hann er borgarstjóri þá er það frekar skammarlegt útfrá hans ábyrgðarstöðu að dreifa þessari skoðun til fréttamiðla. Ég meina, ef hann væri ekki að vinna sem borgarstjóri, sem felst í sér ábyrgð, þá væri það skiljanlegt að hann hefði þessar skoðanir. Og þótt hann kynni kannski seinna meir að segja "Ég var nú bara að djóka" þá ætti hann að passa sig á því hvað hann er að "djóka um", því það er ekkert grín að standa í ábyrðarvinnu og segja síðan svona skaðlegan hlut. Og hvað gæti þetta svo sem skaðað við það að grínast með svona hluti? Jú, orðspor þess að vera borgarstjóri gæti skaðað hans stöðu. Því ef maður tekur það að sér að gerast borgarstjóri, þá ber maður að varast þess hvað maður segir eða gerir, því það er mikil ábyrgð í því að stjórna heila borg og að grínast með þá stöðu getur kallað fram skaða.

Enn að minnstakosti þá er hann ekki sá eini sem er orðinn hundleiður á Icesave. Því það eru margir sem eru orðnir gubbandi leiðir á þessu kjaftæði, og að segja "Já!!!" bara útaf því að maður er orðinn leiður á þessu öllu saman, er þó nokkuð mikil ábyrgðarstaða til þess að vilja taka inná sig skuldir sem maður skuldar ekki. Og ekki nóg með það, heldur skuldsetur maður börnin sín og framtíðarkynslóðina. Og að telja það að maður losnar undan Icesave eða eins og Jón Gnarr orðaði það: "Ég ætla að kjósa það í burt." Bíddu, er það hægt? Ef satt á segja, þá er það ekki hægt. Því eins og advice.is orðar Jáið, það er að segja ef meirihluti þjóðarinnar segir Já, að:

"Þá greiðum við strax 26 milljarða í áfallna vexti og göngumst í ábyrgð fyrir allt að 670 milljarða kröfu sem viðsemjendur áttu á einkabanka.

Til að greiða kröfuna tökum við myntkörfulán, án þess að vita hver höfuðstóllinn er.
http://www.advice.is/?page_id=52". Og síðan er hægt að ná í ýtarlegri upplýsinga um 'Hvað kosta Icesave samningarnir íslenska ríkið?' og 'Hvað er í Icesave frumvarpinu?'.
 
Bíddu, er þetta ekki orðið hræðsluáróður? Nei, þetta eru staðreyndir sem erfitt er að kyngja, því þetta er það sem að samningarnir snúast uppá.

Þannig þú sem ert að lesa þennan pistil. Gefðu þér góðan tíma til þess að kynna þér stöðu Icesaves, því þótt það sé hundleiðinlegt, þá snúast þessir samningar um þig og þína afkomendur. Og að vilja ekki kynna sér stöðu samninganna, er eins og að negla fyrir póstkassalúguna í þeirri von um að maður losni við að borga reikninga, eða, eins og að fara í banka og nenna ekki að kynna sér þá ábyrgð sem felst í því að taka sér lán og lenda síðan í skuldavanda útaf því að maður neitaði þess að kynna sér lánastöðu þess samnings sem maður samþykkti. Þannig gefðu þér góðan tíma áður enn þá tekur þessa erfiðu ákvörðun. Því það geta margir sagt við þig, segðu "Já!!!" eða segðu "Nei!!!", útaf því okkur finnst.

Að lokum. Að kjósa um þennan leiðinlega hlut snýst ekki um það hvað aðrir hafa að segja. Heldur snýst þetta um hvað þú telur vera rétt. Þannig spurningin er, hver er réttarstaða þín í þessu máli og er það ekki siðlaust af þér að borga upp skuldir sem þú skulda ekki, þannig hver er þinn réttur?

Ef þú vilt leita þér upplýsinga um samninganna, þá geturðu farið á eftirfarandi staði:

http://www.advice.is/ & http://www.kjosum.is/
- Tala um uppá hvað samningarnir snúast um...

http://www.forsaetisraduneyti.is/verkefni/verkefnum-lokid/adgerdir/icesave/
- Eru gögn frá forsætisráðuneytinu frá 2009 og 2010 varðandi Icesave samninganna...

no-icesave.jpg
Kær kveðja frá ykkar einlæga vin,
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).

Til framtíð kynslóða, sem segir: "Nei!!!"

To future generations, that say's: "No!!!"

Söknuður -
eftir Vilhjálm Vilhjálmsson söngskáld



Fyrir hvern er þjóð byggð?
For whom is a nation built?

                            Fyrir brot, sem brýttur gegn barnalögum, til fórna Icesave!!!
                            For offense,
against children's law, for sacrifice's to Icesave!!!


Við krefjumst réttar...
We demand right's...

         Látum ekki valdspillingu fórna börnum; fyrir Mammon, Icesave...
         Let no power corruption sacrifice children; for Mammon, Icesave...

         Látum heyrast raddir barna okkar...
         Let's hear the voices of our childrens...

Já...
Yes...
          Okkar framtíðar kynslóð!!!
          Our future generations!!!

                                    Fyrir framtíð;
                                    To future;
                                                       að engum skuldum!!!
                                                       for no debt!!!

Burt með spillingu...
Away with corruption...
                                    sem deyr...
                                    who dies...
                                                       því Mammon Icesave, er dauður...
                                                       for Mammon Icesave, is dead...

                                                       ENN Ekki, okkar framtíðar kynslóð!!!
                                                       BUT Not, our future generations!!!
===============================================================
Þjóðlagasöngur Íslands                                                Icelandig National Anthem
Ó, guð vors lands----------------------------------------------Oh, God of our land!
Ó, land vors guðs----------------------------------------------Oh, our land's God!
vér lofum þitt heilaga-------------------------------------------we worship thy holy
heilaga nafn-----------------------------------------------------holy name
úr sólkerfum----------------------------------------------------from the soler systems
himnanna--------------------------------------------------------of the heavens
hnýta þér krans-------------------------------------------------bind for you a wreath
þínir herskarar--------------------------------------------------your warriors
tímanna safn----------------------------------------------------the assembly of the ages
Fyrir þér er einn dagur-----------------------------------------for thee is one day
sem þúsund ár--------------------------------------------------as a thousand years
og þúsund ár dagur---------------------------------------------and a thousand years a day
ei meir------------------------------------------------------------and no more
eitt eilífðar smáblóm--------------------------------------------one small flower of eternity
með titrandi tár--------------------------------------------------with a quivering tear
sem tilbiður guð sinn--------------------------------------------that prays to its God
og deyr-----------------------------------------------------------and dies
Íslands þúsund ár-----------------------------------------------Iceland's thousand years
Íslands þúsund ár-----------------------------------------------Iceland's thousand years
eitt eilífðar smáblóm--------------------------------------------one small flower of eternity
með titrandi tár--------------------------------------------------with a quivering tear
sem tilbiður guð sinn--------------------------------------------that prays to its God
og deyr-----------------------------------------------------------and dies

Okkar kynslóð!!!                                                          Our generation!!!

==============================================================

althingi_og_icesave_1071853.jpg

The Greatest Scam on Earth - (as explained to Grandma) - The Money Scam
http://blip.tv/file/4377903?utm_source=player_embedded

Kær kveðja frá ykkar einlæga vin,
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).

 


Tímarnir breytast...

Fljótt breytast tímar er við vöknum, lífið lítur undan og allt er breytt. Þetta eru þeir tímar er við óskum ei, en lifum. Hvað kom fyrir? Spyr þjóð. Því þetta er sá tími er þjóð óskar ei. En nú er allt breytt. Hvað á að gera? Jú... Vakna!!!

- Vöknum og skoðum í kringum okkur og lærum það sem við höfum ekki enn lært.
- Vöknum og virðum það sem við höfum ekki virt.
- Vöknum og verum vinir þeirra sem við höfum ekki verið vinir fyrr.
- Vöknum og gefum þeim sem við höfum ekki gefið.
- Vöknum og verum öðrum til staðar.
- Vöknum við erum til.

Því það er það sem lífið kallar... Vöknum!!!

Kær kveðja frá ykkar einlæga vin,
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).


Skrifaði inn á Facebook síðuna mína Nóvember 17, 2009 - kl. 2:54 að morgni til.
http://www.facebook.com/note.php?note_id=183978282650

Hvað gerist ef við borgum ekki það sem við skuldum ekki?

Þetta er spurning sem margir nú á dögum ættu að spyrja sig útí. Af hverju? Kann einhver að spyrja. Til að geta svarað þeirri spurningu, þá langar mig til að spyrja þig sem ert að lesa þennan pistil að annarri spurningu: "Ef rukkari sem þú þekkir ekki og hefur aldrei séð og hitt, myndi koma til þín og rukka þér nokkrar milljónir fyrir eitthvað sem þú veist að þú skuldar ekki. Myndir þú borga þessum rukkara útfrá hræðslu þegjandi og hlóðalaust?". Og af hverju er ég að spyrja að þessari heimskulegri spurningu? Jú, þetta er nefnilega það sem þjóðin er að fara að kjósa um http://www.amx.is/fuglahvisl/16793/. Og þá er ég nefnilega að tala um "þetta hundleiðinlega Icesave".

Því nú stöndum við sem þjóð í þeim valkosti "aftur
" að velja hvað við eigum að gera. Eigum við að borga eða berum við skildu til þess að borga upp þessar skuldir, sem við skuldum ekki? Svarið er einfalt: "Nei!!!". En hvað með allar þessar hrakfellisspár sem fjölmiðlar, pólitíkusar, svartsýniseinstaklingar, Englendingar og Hollendingar eru að segja: "Að ef við borgum ekki, þá mun?". Hingað til hafa þessir hrakfellisspádómar ekki ræst. Af hverju er fólk þá að hræðast þessum hrakfellisspádómum? Jú, þeir sem stunda þá iðju að hræða einstaklinga, eru sjálfir hræddir. Þess vegna er það mjög algegnt af þeim sem skulda og vilja að einhverjir saklausir einstaklingur taki það að sér að borga skuldina, að hann hræði þann einstakling til þess að borga, þótt að hann viti að því að þessi vissi einstaklingur sem hann er að rukka, skuldar ekki þessar skuldir. Þetta er nefnilega ekki ný aðferð sem rukkarar nota. Og þetta er nefnilega það sem þessi Icesave samningur snýst uppá. Því í lögum, þá ber okkur sem þjóð enginn skilda til að borga upp Icesave. Þess vegna vildu hinir 33 stjórnarmenn af 63 Alþingismönnum sem synjuðu kosningu Icesaves ekki sjá það að við þjóðin fengjum að hafa síðasta orðið. Er verið að fela eitthvað sem við megum ekki vita? Er það ástæðan fyrir því að þessir 33 stjórnarmenn Alþingis vildu ekki að við myndum hafa síðasta orðið? Í svipan.is veraldarvefnum er ein lagagrein sem Alþingið synjaði, sem segir svo hljóðandi:

"Við samþykkt Icesave þrjú á Alþingi voru fyrstu Icesave lögin felld úr gildi, þar með talin áttunda grein þeirra sem hljómaði svo:

8. gr. Endurheimtur á innstæðum.
Ríkisstjórnin skal þegar í stað grípa til allra na
uðsynlegra ráðstafana sem þarf til að endurheimta það fé sem safnaðist inn á Icesave-reikningana. Í þeim tilgangi skal ríkisstjórnin fyrir 15. október 2009 hafa frumkvæði að samstarfi við þar til bæra aðila, m.a. yfirvöld í Bretlandi, Hollandi og Evrópusambandinu, og óska aðstoðar þeirra við að rekja hvert innstæðurnar af Icesave-reikningunum voru fluttar. Ríkisstjórnin skal fyrir árslok 2009 semja áætlun um hvernig reynt verður að endurheimta það fé sem kann að finnast.
Í því skyni að lágmarka ríkisábyrgð samkvæmt lögum þessum skal ríkisstjórnin einnig gera ráðstafanir, í samráði við þar til bæra aðila, til þess að þeir sem kunna að bera fjárhagsábyrgð á þeim skuldbindingum sem st
ofnast hafa vegna Icesave-reikninganna verði látnir bera það tjón.

Hreyfingin lagði fram breytingartillögu um að setja þessa grein aftur inn en hún var felld af meiri hluta þings, þar með talið sjálfstæðismö
nnum. Með því að fella út þessa grein dregur verulega úr því að hinir seku verði dregnir til ábyrgðar." Hægt er að nálgast þessari vefsíðu á http://www.svipan.is/?p=21780.

Hvað er verið að fela og af hverju eigum við og börnin okkar að borga upp Icesave, þegar við fáum ekki réttlætið fram? Og hvað mun gerast ef við neitum nýu Icesave lögunum og þau fara til dómstóla? Ef satt á að segja, þá munu dómstólar út frá sínum lögum bera skildu til að sækja sökudólga Icesaves til saka. Þess vegna eru samningsaðilar Icesaves hræddir og reyna allt útf
rá sínu valdi til þess að krefjast þess að við þjóðin borgum upp þær skuldir sem við skuldum ekki og berum enga lagaskildu til að borga. En hvað græðum við á því að senda Icesave til dómstóla? Réttlæti er það sem við græðum, og það er það réttlæti sem við eigum að sækjast eftir. En hvað viltu - viltu borga upp skuldir sem þú skuldar ekki? Það er nefnilega það sem þú sem ert að lesa þennan pistil þarft að spyrja sjálfan þig útí, því Icesave er ekki þér að kenna, heldur þeim sem upphaflega komu Icesave reikningunum af stað, og það eru þeir sem á að sækja til saka. Sem sagt, við öll þjóðin erum ekki afbrotamenn Icesaves, heldur þeir sem stjórnarkerfið vill ekki sækja til saka. Þess vegna verður Icesave að fara til dómstóla, til þess eins, að við sem erum saklaus gagnfart þessu óréttlæti, fáum réttlæti til baka.
 
fuck_icesave_spillinguna.jpg

Þess vegna segi ég: "Nei, Icesave!!!". Enn þú?

Kær kveðja frá ykkar einlæga vin,
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband