Bloggfærslur mánaðarins, desember 2015

Þegar þingmenn framleiða fátækt!

spilling_2015_til_2016.jpg

Þetta er orðið grátsorgarskömm hvernig okkar sér Íslenska þingmannaútgáfa er orðin gegn lýðveldi Íslands sem bundin er því stjórnarskrárákvæði sem skipar að „Allir skulu vera jafnir fyrir lögum“ sem skiptir engu frá hvaða kynflokki, litarhátt og tungumál sú manneskja upprunalega er uppalin frá, hvort sú manneskja sé ung eða gömul, stór eða lítil, mjó eða feit, ófötluð eða fötluð, gáfnaljós eða stórheimsk eins og sumir vilja dæma aðra, vel háskólamentuð eða engra skólamentuð, sú sem iðkar trú eða sá trúlausi sem trúir engu, ríkasta manneskja í heimi eða fátæk af völdum þingmanna sem styðja við fátækt í sínu landi, sá sem kýs og treystir þingmönnum eða sá sem treystir ekki þingmönnum og vill þar með ekki kjósa lygalubba og svikahrappa sem fara illa með lýðveldi sitt, sem og þýðir í breiðu stjórnmálatungumáli: „Allir skulu vera jafnir fyrir lögum“ sem og Alþingi lýðveldi Íslands býr til hverju sinni útfrá ákvæðum stjórnarskrárinnar.

Því eru allir jafnir fyrir lögum hér á Íslandi samkvæmt stjórnarskrá?

Því það allra frægasta sem Alþingi Íslands gerði fyrir stuttu, í desember ári 2015, var eineltislega að kjósa að aldraðir og öryrkjar fengju ekki afturvirt frá 1. maí 2015 eins og samið var við verkafólk á Íslandi, sem og þingmenn okkar þjóðar vilja harðneita öldruðum og öryrkjum að geta ekki fengið að njóta vegna framleiðslustarfsemi þingmanna við að styðja við fátækt hérna á Íslandi sem og stjórnarskrágrein 65. margskipar fyrir að „Allir skulu vera jafnir fyrir lögum“.

Því af hverju eru aldraðir, öryrkjar og aðrir lágtekjuhópar skyld eineltislega útundan við að fá ekki að njóta þess að geta fengið að lifa mannsæmandi launalífi hérna á Íslandi?

Því alveg frá hruni 2008, upp að okkar dögum, þegar sú sér Íslenska útgáfa af þingmönnum gerðu það risastóra heimsmet í byrjunar ári 2009 sem ennþá er eftir að skrásetja í heimsmetabók, að skerða lífeyristekjur aldraðra og öryrkja sem stjórnarskráin margskipar fyrir að „Allir skulu vera jafnir fyrir lögum“.

Já þann eina lífeyri sem aldraðir og öryrkjar lifa á, sem og aftur var nú nýlega, þann 19. desember 2015. kl. 17:14,  af völdum þrjóskra og hjartalausra 35 stjórnarþingmanna, 18 úr Framsóknarflokk (xB) og 17 úr Sjálfstæðisflokk (xD), sem stunda þá stóriðju árlega að styðja við fátækt hér á Íslandi að neita því í fjárlagafrumvarpi 2016 að aldraðir og öryrkjar fengju ekki afturvirt frá 1. maí 2015 eins og það sem verkafólk fengu nú í desember 2015, því í augum þeirra sem neita að aldraðir og öryrkjar skuli njóta jafnræðis hér á Íslandi, eru nefnilega að margbrjóta gegn stjórnarskrá og öðrum launalögum með því að neita að aldraðir, öryrkjar og aðrir lágtekjuhópar séu ekki „Allir skulu vera jafnir fyrir lögum“ og þar með sjá til þess að þau sem eiga börn svelti útaf kæruleysi þeirra 35 þingmanna sem framleiða fátækt í sínu landi.

Já því miður gleymist það margoft af þingmönnum, að margir af þessum öldruðum, öryrkjum og aðrir lágtekjuhópar eiga því miður börn þótt þeir búa einir og lifa ekki í sambúð, sem og lifa bara á því sem þingmenn skammta þeim hverju ári, sem nú í þessu ári þá er einbúi að lifa á sirka 170-180.000 kr. á mánuði eftir að búið er að draga sirka + 38% skatt af þeim launum, sem og þingmenn vilja með fjárlögum 2016 bara veita 9,7% launahækkun til aldraðra, öryrkja og annarra lágtekjuhópa sem mun vera um 190-200.000 kr. út mánuðinn eftir skatt án afturvirkni frá 1. maí 2015 eins og samið var við verkafólk á Íslandi og við stjórnvöld sem fengu lúxusafturvirt frá 1. mars 2015 með jólabónus, sem þýðir, að aldraðir, öryrkjar og aðrir lágtekjuhópar þurfa á nýja árinu 2016 að halda áfram að lifa á því sem úti frís á meðan þingmenn styðja við fátækt á Íslandi með því eineltislega að neita öldruðum, öryrkjum og öðrum lágtekjuhópum réttlætislaun til að geta lifað á, sem og er skömm þeirra svika þingmanna sem lofuðu árið 2013 að launaskerðing aldraðra og öryrkja skildu lagfærast.

Því hvað annað er hægt að segja þegar 29 þingmenn í fyrsta frumvarpi og 35 þingmenn í öðru og loka frumvarpi neita öldruðum og öryrkjum mannsæmandi launum til lifnaðar með því að semja að 9,7% sé sú allra mesta launaleiðrétting og að aldraðir og öryrkjar verði bara kyngja þeirri leiðréttingu án afturvirkni frá 1. maí 2015 sé ekki annað en stuðningur við fátækt hérna á Íslandi, því hver heilbrigður maður skilur það mæta vel að 9,7% launahækkun til aldraðra og öryrkja mun ekki bæta upp þeirra kjör hérna á Íslandi, því þegar þingmenn árið 2014 samþykktu 3% í fjárlög 2015 til aldraðra og öryrkja, þá sungu þau að þær hækkanir væri réttlát laun, sem í ljós kom að svo var ekki, enda eru margir aldraðir og öryrkjar sem geta staðfest það að lifa á 170-180.000 kr. á mánuði hérna á Íslandi er ekki auðvelt, að minnstakosti ekki þegar þingmenn á sama ári 2015 hækkuðu matvörur uppí 4% sem gerði það kleift að þau 3% sem aldraðir og öryrkjar fengu, gufuðu upp.

Þannig að segja að 9,7% sé sú allra mesta launaleiðrétting sem aldraðir, öryrkjar og aðrir lágtekjuhópar munu fá árið 2016, sem í heildinni hjá einbúa mun vera um 190-200.000 kr. eftir skatt, sé nóg til að lifa á hérna á Íslandi, er nú því miður sá allra versti blekkingarleikur sem þingmenn semja til aldraðra, öryrkja og annarra lágtekjuhópa því hver Íslendingur veit það mæta vel að engin einbúi sem á börn getur lifað á tæp 190-200.000 kr. á mánuði á meðan húsaleiga, reikningar og matvörur leifa það ekki hérna á Íslandi.

Þannig hvað ætla þingmenn að gera í því að sjá til þess að allir sem skulu vera jafnir fyrir lögum fái nú réttlát laun, því ef fjárlög 2016 verða bara 9,7% til aldraðra, öryrkja og annarra lágtekjuhópa þá sýnir það sig að Alþingi Íslands er orðin framleiðslustofnun sem styður við fátækt á Íslandi, því ekki gætu þeir þingmenn sem vinna inni á Alþingi sjálf lifað á þeim tekjum sem þau skammta öldruðum og öryrkjum, og ekki gætu Íslenskt verkafólk sem vita það mæta vel að engin getur lifað á þeim tekjum sem þingmenn skammta eineltislega öldruðum, öryrkjum og öðrum lágtekjuhópum því eins og leigumarkaður og matarnauðsynjar eru á okurháu verði í þessu græðgi landi, þá veit það hver og einn sem vit hefur og skinsemi, að engin getur lifað á tæp 20-60.000 kr. á mánuði sem því miður er afgangur þeirra sem lifa á lágtekjum, því ekki er það bara húsaleiga, reikningar og matur sem aldraðir og öryrkjar borga, heldur undir mörgum tilfellum lækniskostnað og lyf, sem þýðir að tekjurnar munu ekki leifa það að það sé hægt að lifa á hérna á Íslandi.

Þannig hvað ætla þingmenn að gera í þeim málum, er það orðið stefna Alþingi Íslands að skapa fátækt hérna á Íslandi?

Sem því miður sést að svo virðist vera, með því að brjóta gegn stjórnarskrálýðveldisins sem margskipar það að „Allir skulu vera jafnir fyrir lögum“, því ef það er ekki í stefnuskrá þingmanna að framleiða fátækt hérna á Íslandi, sem virðist vera í stefnuskrá Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins sem eru verstu óvinir aldraðra, öryrkja og annarra lágtekjuhópa sem verða á næstu Alþingiskosningum að passa uppá það að kjósa ekki aftur þessa tvo svikaflokka sem fara mjög illa með láglaunafólk, því nú þurfa þingmenn nú á dögum, sem virðist vera alltof seint fyrir Framsóknarflokk og Sjálfstæðisflokk, að fara að sína uppá að þau séu ekki að styðja við fátækt, því nóg er komið af þessu einelti sem þingmenn veita lágtekjuhópum árlega, því ekki kaus Ísland þingmenn til að fara illa með sína þjóð og kjósendur, heldur var hún kosin til að laga vanda þjóðarinnar, sem hefur sýnt sig að þingmenn nú á dögum eru því miður ekki að byggja upp Ísland í réttlæti, heldur að rústa því landi með fátækt á lágtekjuhópum og í þokkabót að rústa heilbrigðiskerfi Íslands með öllum þeim ólögum sem brýtur gegn jafnræði Íslands, því ekki eru það bara þeir ríku sem byggja upp Ísland, heldur allir landsmenn sem stjórnarskráin skipar fyrir að „Allir skulu vera jafnir fyrir lögum“, því þetta er það sem þingmenn ná ekki ennþá að skilja, að við öll erum jöfn og það ber að haga öllum lögum þannig að laun landsmanna skal í lögum tilheyrast því jafnræði.

Sem og því miður þá semja margir þingmenn (aðallega Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur) lýðveldinu til háborinnar skammar ójöfnuð og vanvirðingu, teljandi trú um það að þeir ríku sem kaupa þingmenn (aðallega Framsóknarflokk og Sjálfstæðisflokk) undir borðið með allskonar lögleysi gegn öllum þeim sem skulu vera jafnir fyrir lögum, er sú allra versta martröð sem þingmenn gera gegn sínu föðurlandi, að gerast föðurlandssvikarar og mismuna þeim sem stjórnarskrá lýðveldisins sem hefur margskipað fyrir að „Allir skulu vera jafnir fyrir lögum“.

Því þetta er ekki orðið eðlilegt hvernig gjörspilltir þingmenn á nútíma öld misbjóða öldruðum og öryrkjum með því að margbrjóta gegn ákvæði stjórnarskrárinnar sem skipar fyrir því að „Allir skulu vera jafnir fyrir lögum“, með því að vilja ekki leifa þeim hópi sem lifa á smánarlaunum að fá afturvirt frá 1. maí 2015 eins og samið var við verkafólk og þingmenn, því með þessu þá eru þingmenn (aðallega Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur sem vinna ekki með öldruðum, öryrkjum og öðrum lágtekjuhópum) því miður að styðja við fátækt hérna á Íslandi, bara við það eitt að vilja ekki leiðrétta betur launakjör þeirra sem minnst eiga.

Þannig kæru þingmenn, hættið nú að margbrjóta gegn lýðveldinu með öllu því lögleysi sem mismunar alla sem skulu vera jafnir fyrir lögum, því til að Ísland byggist nú einhvern tíman upp sem jafnræðisríki, þá þurfa öll lög að byggjast upp á því jafnræði, þannig vonandi lærir Alþingi okkar þjóðar einhvern tíman að virða, því þannig mun Alþingið líka fá virðingu aftur til baka, það er að segja að ef þingmenn nú á dögum vilja að Ísland skuli njóta þess réttindi að „Allir skulu vera jafnir fyrir lögum“, sem lítur út útfrá Framsóknarflokk og Sjálfstæðisflokk að þeir flokkar eru ekki fyrir þá hópa sem lifa á láglaunum hérna á Íslandi, sem sýnir okkur Íslendingum að þessir flokkar eru að framleiða fátækt á Íslandi, enda eru þeir svikahrappar og stuðningsmenn fátæktar á sínu eigin landi með því að neita láglaunuðum réttlátum launum sem því miður er skömm þeirra 35 hjartalausra þingmanna sem svíkja árlega láglaunuðum mannsæmandi launum til lifnaðar, sem þýðir að Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur eru þeir flokkar sem stunda stjórnarskrábrot gegn öllum þeim sem skulu vera jafnir fyrir lögum, með því að stunda fátæktarframleiðslu gegn láglauna fólki Íslands, því eins og þessi tveir flokkar hafa hegðað sér í undanfarin ár, þá eru þau ekki bara að sverta og svelta láglaunaða, heldur eru þau að hundsa heilbrigðisvanda Íslands með því að hundsa þann vanda árlega, sem segir okkur Íslendingum að þessir tveir flokkar eru ekki að vinna með þjóðinni, heldur gegn henni með öllu því lögleysi sem því miður er sorglegt að þessir tveir flokkar séu sökudólgar þess að rústa Íslandi í bullandi ójöfnuð sem stjórnarskráin skipar fyrir að „Allir skulu vera jafnir fyrir lögum“.

Þannig vonandi þjóðarinnar vegna læra þeir gjörspilltustu þingmenn, Framsóknarflokkur (xB) og Sjálfstæðisflokkur (xD), sem létu þjóðina blekkja sig í að kjósa sig að fara að virða kjósendur sem trúðu svik þeirra sem margbrjóta gegn lýðveldinu sem stjórnarskráin margskipar að „Allir skulu vera jafnir fyrir lögum“, sem og maður er farinn að sjá, að þeir flokkar munu ekki læra neitt, enda kann sá flokkur ekki að virða þjóðina sem lét svíkjast af þessum flokkum sem lofuðu árið 2013 að lagfæra launavanda þeirra sem minnst eiga, vegna kvikindisblekkinga þeirra svikaflokka sem kann ekki að virða jafnræði sinna þjóða sem kaus þau fyrir þau loforð að bæði laun þeirra sem minnst eiga skildi lagast og vegna heilbrigðisvanda þjóðarinnar sem þessir gjörspilltu þingmenn eru því miður að sjá til að fara illa með án þess að gera eitthvað í því sem þau lofuðu þjóðinni, því á meðan láglaunaðir lifa í fátækt vegna framleiðslu starfsemi þessara svikaflokka, þá því miður eru þessir flokkar þjóðinni til margskammar bara við það að stunda stjórnarskrábrot á allt jafnræðið.

Því ef þessir svikaflokkar fara nú ekki að læra að virða sína þjóð almennilega, þá því miður verða þau vanhæfu þingmenn að fara að segja upp sínu starfi, því eitt gleyma þessir flokkar, að þau eru ekki bara að vinna fyrir þá ríkustu sem kaupa lögleysi gegn jafnræði Íslands, heldur fyrir alla sem stjórnarskráin er búinn að margskipa fyrir að öll lög skulu tilheyrast öllum enn ekki bara sumum einsog þessir spilltu flokkar vilja daglega halda þegar þau vísvitandi brjóta gegn stjórnarskránni sem skipar þess að „Allir skulu vera jafnir fyrir lögum“.

Að lokum kæru lesendur, munið eftir þessum flokkum sem sviku ykkur, því nóg er komið af þessari kaldhæðni sem þessir flokkar gera daglega gegn sínu jafnræði sem þau eru því miður dugleg að fyrirlíta sér til kvikindisskemmtunar án blygðunar þess skaða sem þau valda sinni þjóð, þannig vonandi krefst þjóðin réttlætis áður en þessir velspilltu þingmenn rústa Íslandi sem er bundin jafnræðisákvæði stjórnarskrárinnar að „Allir skulu vera jafnir fyrir lögum“.

Kær vonar kveðja til betri framtíða,
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).


Opið bréf til þingmenn!

Kæru þingmenn, svo virðist vera að þeir sem síðast kusu risastórt „NEI“ í fyrsta frumvarpi fjárlaga um að aldraðir og öryrkjar fái ekki afturvirt frá 1. maí 2015 eins og var samið við verkafólk nú í desember, þá ætla þingmenn nú að endurtaka sama leikin gegn því öðru frumvarpi sem Alþingi okkar þjóðar er nýlega búið að samþiggja, að vilja ekki endurgreiða afturvirkt öldruðum og öryrkjum sömu leiðréttingar og verkafólk fékk.

Sem sýnir að þeir hjartalausu þingmenn sem styðja við fátækt á Íslandi, með því að brjóta gegn stjórnarskránni sem margskipar fyrir að „Allir skulu vera jafnir fyrir lögum”, eru ekki að sinna sinni vinnu við að útríma fátækt með því að hundsa öryrkjum og öldruðum við að vilja ekki endurgreiða þeim afturvirt frá 1. maí 2015 eins og verkafólk fékk nú í desember.

Því ekki er nóg með að þingmenn brjóta gegn jafnræði aldraðra og öryrkja með því að vilja ekki samþiggja að þau fái ekki afturvirt í tíman, heldur eru þau enn og aftur að svíkja öldruðum og öryrkjum með lúsa 9,7% launahækkunum sem mun ekki einu sinni duga út mánuðinn til framfærslu hér á Íslandi.

Því hvað fengu þingmenn nú í desember 2015 miklar afturvirkar hækkanir með jólabónus?

Jú, þau fengu víst afturvirt frá 1. mars 2015, samtals 9 mánuði aftur í tíman, plús jólabónus, og vilja síðan halda áfram að sverta stöðu aldraðra og öryrkja með því að vilja veita þeim lúsa 9,7% sárabætur án afturvirkni eins og verkafólk fékk nú í desember 2015, semsagt þingmönnum finnst það orðið  mjög gaman að framleiða fátækt hér á Íslandi með því stolti að segja að þetta séu þær allra mestu launaleiðréttingar aldarinnar sem aldraðir og öryrkjar munu fá nú þann 1. janúar 2016, sem þýðir, að aldraðir og öryrkjar verða en og aftur skyld útundan einsog var gert í síðasta ári þegar þingmenn komu illa fram við láglaunaða við að vilja ekki fara eftir jafnræði stjórnarskrárinnar með því að vilja ekki leiðrétta betur kjör aldraðra og öryrkja, nema jú endurtaka aftur sama skrípóleikinn eins og þau gerðu síðasta áramót þegar þau skertu laun aldraðra og öryrkja uppí 3%, sem átti að vera 3,5%, en vegna illsku þeirra þingmanna sem vildu ekki samþiggja betri laun til aldraðra og öryrkja á síðasta ári, þá ætla þau víst að endurtaka sama leikinn og hundsa stöðu þessa hóps eins og vanalega.

Því samkvæmt stjórnarskrá og lögum, þá eru þingmenn að margbrjóta gegn öldruðum og öryrkjum með því að vilja ekki endurgreiða þeim afturvirkt eins og verkafólk fékk frá 1. maí 2015, samtals 7 mánuði aftur í tíman, nú í desember, með því að vanvirða stöðu láglaunaðra með þeirri smánarskömm sem þau árlega veita öldruðum og öryrkjum með því að vilja ekki leiðrétta betur þeirra stöðu nema með lúsaleiðréttingum sem mun ekki einu sinni duga út mánuðinn, því ekki myndu þeir þingmenn sem samþiggja fátækt á sínu eigin landi sjálf geta lifað á þeim tekjum sem þau eru að veita öldruðum og öryrkjum, enda þurfa þingmenn ekkert að hafa miklar áhyggjur af því að þurfa að lifa þeirri fátæktarskömm sem aldraðir og öryrkjar eineltislega lifa árlega, enda fengu þau sjálf lúxuslaun afturvirt frá 1. mars 2015 með jólabónus, sem aldraðir og öryrkjar í þeirra augum mega víst ekki fá, vegna illskuhjarta þeirra þingmanna sem dýrka að fara illa með láglaunaða með því að gefa þeim endalaust niðurlægingu við að vilja ekki leiðrétta betur laun þeirra sem minnst eiga, sem og er orðið skömm hér á Íslandi að til séu svona illa innræktaðir þingmenn sem leika sér að niðurlægja árlega stöðu þeirra sem geta ekki varist gegn því ofbeldi sem þau veita eineltislega láglaunuðum árlega.

Því ekki er þetta í fyrsta skiptið sem þessir illa innræktuðu hjartalausu þingmenn fara svona illa með láglaunaða, enda er þetta gömul endurtekning sem aldraðir og öryrkjar hafa árlega þurft að upplifa af þeim eineltisþingmönnum sem hingað til hafa ekki viljað virða stöðu láglaunaðra, nema jú kvikindislega að fara illa með þá hópa sér til skemmtunar, en öldruðum og öryrkjum til smánunar og vanvirðingar.

Því hvert sinn sem launakjör aldraðra og öryrkja kemur uppá yfirborðið inni á Alþingi, þá er það orðið venja hér á Íslandi að láglaunaðir séu alltaf niðurlægð og skyld útundan vegna þeirra þingmanna sem dýrka að niðurlægja lágtekjufólk sem stjórnarskráin margskipar að „Allir skulu vera jafnir fyrir lögum”, sem þýðir, í augum þeirra illgjörnu þingmanna sem endalaust leika sér að hundsa stöðu láglaunaðra, eru því miður þjóðinni til háborinnar skammar að þau séu orðin svona illa innræktuð að vilja ekki betrumbæta kjör þeirra sem minnst eiga, nema jú  afsaka það að ef láglaunaðir fá meiri laun, þá mun himin og jörð líða undir lok, sem þýðir, að allar nauðsynjar munu stórhækka í verði ef aldraðir og öryrkjar fá það réttlæti að geta fengið að lifa mannsæmandi lífi.

Því það virðist vera í lagi ef skattar lækka hjá þeim launahæstu og að kaup þeirra launahæstu hækki uppí tugmilljóna króna árlega á meðan laun lágtekjufólksins skerðist krónu við krónu þegar nauðsynjar hækka, þeim launhæstu til góðs, en láglaunuðum til skammarlegra smánunar.

Því ekki eru þeir þingmenn sem styðja við fátækt á Íslandi að sína öldruðum og öryrkjum virðingu með þeim niðurlægingum sem þau eineltislega veita árlega hvert sinn sem launamál aldraðra og öryrkja kemur upp.

Því alveg síðan að bætur aldraðra og öryrkja skertust árið 2009, þá hafa stjórnvöld ekkert verið mjög dugleg við að virða stöðu þessa hóps, nema jú árlega að sverta stöðu láglaunaðra með því að skilja þau útundan eins og þegar eineltiseinstaklingur fer illa með sín fórnarlömb sem getur ekki varist þeirra eineltisníð.

Því ekki hafa aldraðir og öryrkjar verkfallsrétt, enda lendir sá hópur í mjög slæmu einelti hjá þeim þingmönnum sem finnst það orðið mjög gaman að brjóta gegn þeim sem minnst eiga, sem og geta ekki varist  þeim margbrotum sem og þessir vissir þingmenn veita láglaunuðum árlega, því ef láglaunahóparnir myndu kvarta yfir þeirri slæmri niðurlægingastöðu sem þau lenda í árlega, þá er þeim hefni refsað með launaskerðingum, nauðsynjavöruhækkunum og jafnvel hungurdauða vegna þeirra vanrækslu sem aldraðir og öryrkjar lifa í, vegna þrjósku þeirra þingmanna sem vilja ekki samþiggja launaréttlæti til þeirra sem minnst eiga.

Því að halda að 9,7% sé það mesta sem aldraðir og öryrkjar hafa fengið hingað til, er nú sú versta stórblekking sem þessir þingmenn sem styðja við fátækt á Íslandi hafa látið útúr sér heyra, sem og er Alþingi okkar þjóðar til háborinnar skammar ef þau gera ekkert í því að leiðrétta þær stórblekkingar sem þessir illgjörnu þingmenn vilja veita öldruðum og öryrkjum nú árið 2016 án afturvirkni eins og verkafólk landsins fékk nú í desember, eins og þið þingmenn fenguð líka, nema aldraðir og öryrkjar sem virðast aftur lenda í sama eineltið við að fá ekki betri launaleiðréttingar nema jú þessar aumu 9,7% lúsaleiðréttingar.

Þannig vonandi fáum við aldraðir og öryrkjar í þriðja loka umræðu Alþingis, einhvern tíman réttlæti, það er að segja ef þið þingmenn samþiggið í þriðju umferð að veita okkur þær leiðréttingar sem við aldraðir og öryrkjar útfrá stjórnarskrá eigum rétt á því að fá, því „Allir skulu vera jafnir fyrir lögum“ eins og stjórnarskráin orðar það, þannig virðið það jafnræði og samþiggið afturvirt aftur í tíman frá 1. maí 2015 eins og verkafólk fékk, því það kallast sanngjarnt réttlæti ef þið gætuð gefið öldruðum og öryrkjum þá óskagjöf í nýju ári, að gefa þeim þær leiðréttingar sem þið lofuðuð árið 2013, því með þeirri dýrmæddri gjöf, þá eru þið þingmenn að virða láglaunaða með því að mæta þeim með afturvirkni aftur í tíman og líka sjá til þess að fátækt ríki ekki lengur hér á Íslandi, það er að segja, ef þið þingmenn viljið gera öldruðum og öryrkjum þann góðhjarta greiða að samþiggja þá afturvirkni sem verkafólk fékk nú í desember 2015 til aldraða og öryrkja, því með þeirri samþykkt, þá má búast við því að margir aldraðir og öryrkjar munu mikið fagna og gleðjast ef sá draumur mun loksins rætast, því öll þörfnumst við þesskonar réttlæti, sem gefur sátt við þingmenn og láglaunaða, sem og við öll verðskuldum að fá, því þannig mun sátt koma á milli þings og þjóðar ef sú ósk gæti nú ræst, að þið þingmenn gæfuð öldruðum og öryrkjum þann góðhjarta greiða að veita þeim þetta réttlæti.

Því þetta er það sem við öll þjóðin þörfnumst, réttlæti og virðingu, sem og við öll verðskuldum að fá, því þannig verða allir sáttir ef allir vinna saman við að skapa betri framtíð, með því að útríma fátækt, með virðingu til hvort annað, því þannig byggist upp Ísland til hins góða, ef við lærum að virða alla sem stjórnarskráin skipar fyrir að „Allir skulu vera jafnir fyrir lögum“, því þetta kallast framtíð að Ísland virði alla sem jafna, sem og við öll verðskuldum að fá, því þetta kallast sannréttlæti ef Ísland myndi nú einn daginn læra að virða hvort annað sem jöfn, en ekki sem ójöfn eins og Ísland er nú á dögum að upplifa.

Þannig lærum að virða hvort annað, því það kostar ekkert, nema virðingu aftur til baka.

Kær vonar kveðja til betri framtíða,
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband