Að bera virðingu er ekki svo mjög flókið!
9.7.2020 | 00:30
Til er allskonar dulspeki og heimspeki hvað langar þér að heyra um þá skrýtnu speki?
Enda búum við í allskonar speki flækjuheimi, sem furðulega endalaust spyr: Hvar er nú sú allra flóknasta vinsælasta tískuflókna speki til í heimsmeistarabók að maður sé orðinn vinsældarbikar hitt og þetta dæmi, þar sem maður þarf að leita í allskonar netflækju dulspekiheima, til þess einfaldlega að fatta þá speki?. Eitt sinn var spaklegur mennskur holdlegur maður sem vitnaði: Það sem hefir verið, það mun verða, og það sem gjörst hefir, það mun gjörast, og ekkert er nýtt undir sólinni. (Prédikarinn 1:9). Og að lifa undir sólinni, er nú ekki auðvelt dans á rósum að vilja læra að lifa því lífi á okkar nútímaöld, enda er ekkert nýtt að gerast þar sem hefur gerst áður, nema það eina risastóra flókið spurningarmerki: Hvað er nýtt til að læra eitthvað sem hefur ekki verið að gerast áður, því hvað er að gerast undir sólinni nú á dögum, er hún ekki bara endalaust að hringsólast kringum einhverja plánetu sem kallast jörð?.
Njótið í virðingu, Magnús Ragnar (Maggi Raggi), sem lærir að bera virðingu, hver sem þið eruð, í þeim kærleik sem maður getur gefið, kveðja, farið mjög vel með ykkur, enda kostar ekkert, nema virðingu aftur til baka.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.