Þau siðblindu og spilltu græðgiveldi sem eyðileggja Ísland!

grae_gi-laglaunafolks.jpg

Þann 23 Nóvember 2013 skrifaði ég á síðu minni um "Svika starfsemi bankanna og stjórnarmanna Samstaka atvinnulífsins (SA)". Því nú 17 Nóvember 2014 er Már Guðmundsson seðlabankastjóri Íslands sem fékk 19,98% launa(leiðréttinga)hækkun afturvirkt frá 1 Ágúst 2012 til Júlí 2013 að væla til þjóðarinnar í fréttavef RÚV  undir fyrirsögninni að "Laun hækki ekki meira en 3,5% í heildina".

Hvað er um að vera hér á Íslandi, eiga láglaunalandsmenn að sætta sig við hvaða bull sem er af þeim sem lifa á hálaunum sem og vilja ekki að aðrir njóti þess sama? Því hvenær fara þessi siðblindu og spilltu græðgiveldi að hætta að níðast á þeim sem eiga varla fyrir sig og sína og eru að krefjast meiri launahækkana en fá það ekki af því að þeir sem lifa lúxus lífi finnst mjög auðvelt og gaman að geta sagt við þjóð sína að þau verði að sætta sig við það einelti sem þau eru að lifa nú á dögum með því að fá ekki leiðréttingar á sínum launum. Því einsog þjóðin er búin að kynnast undanfarin ár, þá má búast við á árinu 2015 að laun hálaunastéttarinnar mun hækka, en spurningin er: "Hversu mikið mun laun hálaunastéttarinnar hækka, enn ekki laun þeirra sem þurfa á þeim hækkunum að halda?"

Og ekki er nóg að lesa um þetta væl í Már Guðmundsyni seðlabankastjóra Íslands, heldur er Vigdís Hauksdóttir formaður fjárlaganefndar að væla á eyjan.pressan.is undir fyrirsögninni "Vigdís: Kaldhæðnislegt boð á fund öryrkja á sama tíma og áhlaup stendur yfir – „Er allt leyfilegt í dag?“", sem og hún virðist búinn að gleyma eða ekki hafa tekið eftir, að þegar kosningarnar 2013 voru, þá lofuðu stjórnvöld eins og Lilja Þorgeirsdóttir framkvæmdastjóri Öryrkjabandalags Íslands sagði á vefsíðu obi.is þann 23 September 2013, að: "Í aðdraganda kosninga lofuðu bæði Framsóknar- og Sjálfstæðisflokkurinn að ef þeir kæmust til valda væri það forgangsmál að leiðrétta kjör lífeyrisþega vegna kjaraskerðinga sem þeir hafa orðið fyrir á undanförnum árum.", og aftur að: "Í kosningabaráttunni voru gefin loforð um að bæta kjör öryrkja og eldri borgara sem hafa mátt þola umtalsverðar kjaraskerðingar frá efnahagshruninu haustið 2008. Framsóknarflokkurinn taldi eitt brýnasta viðfangsefnið vera að hækka lífeyrisgreiðslur til aldraðra og öryrkja vegna kjaraskerðinga og kjaragliðnunar sem þeir hafa orðið fyrir á samdráttartímum. Sjálfstæðisflokkurinn ályktaði á landsfundi að sú kjaraskerðing, sem eldri borgarar og öryrkjar urðu fyrir 1. júlí 2009, yrði tafarlaust afturkölluð og að um forgangsmál væri að ræða.", og að lokum þegar stjórnvöld hækkuðu laun um 7000 útvalna aldraðra og öryrkja segir: "Hins vegar eru það mikil vonbrigði að einungis tvær af skerðingunum frá 1. júlí 2009 verði leiðréttar sem greinilega eru valdar m.t.t. þess að þær kosta minnst fyrir ríkissjóð og ekki er gert ráð fyrir að þær gildi afturvirkt. Samkvæmt því virðast stjórnvöld ekki ætla að standa við gefin loforð strax á sumarþingi nema að hluta til. Notast er við smáskammtalækningar sem nýtast ekki þeim sem eru með lágar tekjur.

Staðreyndin er sú að ef frumvarpið fer óbreytt í gegnum þingið mun einungis mjög fámennur hópur örorkulífeyrisþega njóta þess. Því ekki er um að ræða hækkun á fjárhæðum einstakra bótaflokka heldur minni tekjutengingar hjá þeim sem hafa einhverjar aðrar tekjur en bætur almannatrygginga. Hækkun á frítekjumarki á launatekjum varðar eingöngu ellilífeyrisþega og afnám skerðinga á grunnlífeyri vegna lífeyrissjóðstekna nær einungis til fámenns hóps öryrkja. Sú forgangsröðun vekur furðu að leiðréttingar á kjörum sem byrjað er á ná ekki til þeirra sem þurfa að framfleyta sér á lágum bótum og hafa litlar eða engar aðrar tekjur. Þessi hópur á erfiðast með að ná endum saman en mun ekki fá leiðréttingar á sínum kjörum strax að loknu sumarþingi og mikil óvissa ríkir hvenær þeir megi vænta þess." Þannig hvernig er staða aldraðra, öryrkja og þeim láglaunahópum sem fá aðrar tekjur úr kerfinu nú á dögum?

Jú eins og kvennabladid.is vitnaði þann 28 Október 2014, að: "Barnafátækt á Íslandi jókst um rúm 20 prósentustig frá árinu 2008 (11,2%) til 2012 (31,6%) ef miðað er við lágtekjumörk frá árinu 2008.  Ísland er þannig í neðsta sæti af ríkjunum 41, næst á eftir Grikklandi, en þessi aukning samsvarar því að um 17 þúsund fleiri börn hér á landi hafi fallið undir lágtekjumörkin frá 2008 á þessu tímabili.", og 6 dögum áður 22 Október 2014 segir, að: "Rúmlega helmingur örorkulífeyrisþega fær engar greiðslur úr lífeyrissjóði. Meðaltalslífeyrissjóðsgreiðslur örorkulífeyrisþega eru undir 50.000 kr. á mánuði.

Hámarksbætur TR árið 2014 eru 168.570 á mánuði eftir skatt fyrir þá sem ekki fá heimilisuppbót greidda, en sá bótaflokkur er greiddur til þeirra sem ekki reka heimili ásamt öðrum fullorðnum.

„Hópur lífeyrisþega nær ekki að auka tekjur sínar vegna krónu á móti krónu skerðinga. Þá bætir það engu við ráðstöfunartekjur þessara einstaklinga þó svo að þeir séu með aðrar tekjur s.s. lífeyrissjóðs- eða launatekjur. Í mörgum tilfellum eru þetta einu tekjur fólks árum og áratugum saman og oft og tíðum samhliða miklum kostnaði s.s. vegna heilbrigðisþjónustu og hjálpartækja,“ segir Sigríður Hanna Ingólfsdóttir, félagsráðgjafi hjá Öryrkjabandalagi Íslands.

„Þá er stækkandi hópur fólks með tekjur undir framfærsluviðmiði TR – sem er það sama og hámarksbætur eða 188.313 krónur fyrir skatt og 218.515 krónur með heimilisuppbót og fyrir skatt – vegna búsetu erlendis.

Sýnt hefur verið fram á að þeir sem hafa litlar eða engar aðrar tekjur en örorkubætur búa við svo þröngan fjárhag að margir þeirra eiga ekki fyrir mat eða öðrum nauðþurftum síðari hluta mánaðarins. Þá eru örorkubætur svo lágar að stór hluti öryrkja er annaðhvort fátækur eða á mörkum fátæktar samkvæmt öllum viðurkenndum viðmiðum. Örorkubætur eru langt undir öllum neysluviðmiðum velferðarráðuneytisins.

Lögum samkvæmt eiga örorkubætur að fylgja vísitölu neysluverðs eða framfærsluvísitölu eftir því hvor er hærri. Þessu lagaákvæði hefur ekki verið fylgt síðan 2008 og hafa bæturnar því rýrnað að verðgildi sem því nemur. Örorkubætur hafa auk þess ekki fylgt hækkunum launa á almennum markaði þó ýmsir standi í þeirri trú. Þetta gerist á sama tíma og greiðsluþátttaka í læknis-, lyfja- og þjálfunarkostnaði hefur stóraukist.

Tekjutengingar innan kerfisins gera fólki ókleift að bæta fjárhagslega stöðu sína og halda fólki þannig í fátæktargildru.“", og áframhaldandi: "Samkvæmt stjórnarskrá okkar Íslendinga og þeim alþjóðlegu mannréttindasáttmálum sem við erum aðilar að ber að tryggja einstaklingum þau lífskjör að fólk geti lifað með reisn. Stjórnvöld hafa því augljóslega brotið stjórnarskrána og áðurnefnda sáttmála með þeim bágu lífskjörum sem þau hafa búið öryrkjum þessa lands."

Þannig ekki er nóg að hinu siðblindu og gjörspilltu stjórnvöld okkar lands og Már Guðmundsson og Vigdís Hauksdóttir sem sagði hér fyrir ofan með spurningarmerki „Er allt leyfilegt í dag?“ eru að fara illa með sína stöðu með því að hundsa láglaunahópana sem svelta útfrá þeirra eineltis blindu og þrjósku, heldur eru launakerfi heilbrigðiskerfisins, tónlistaskólans og annarra verkamanna í rústandi mólum vegna þeirra gráðugu elíta sem lifa þann lúxus að þau í framtíðinni þurfa varla að hafa áhyggjur af því þótt meirihluti þjóðarinnar svelti vegna þeirra græðgi. Því eins og Viðskiptablaðið vitnaði 13 Nóvember 2014 undir fyrirsögninni: "Ráðherrar fá nýja lúxusbíla" og aftur sama dag "Nýr bíll forsætisráðherra verður BMW, Benz eða Audi" og að lokum í visir.is þann 14 Nóvember 2014 undir fyrirsögninni: "Benz-inn með meiri þægindi en BMW-inn sportlegri". Þá er okkar spilltu stjórnvöld ekki bara að hundsa þjóðina vegna græðgispillingu, heldur eru þau að huga að eiða okkar skattborgaratekjur til að verlauna sér fyrir rándýrum bílum sem og þau eru svo dugleg að reina að blekkja þjóðina að það sé ekki hægt að laga vanda hennar hverju sinni vegna tekjuskerðinga.

Er þetta það sem hinir Íslensku kjósendur óskuðu eftir þegar þau kusu árið 2013 að stjórnvöld myndu dekra við sig og sína spilltu auðmenn og hundsa síðan meirihluta þjóðarinnar hverju sinni? Því ef þetta er ekki það sem þjóðin óskaði eftir, þá þurfa stjórnvöldin sem þjóðin kaus árið 2013 að fara að vakna uppúr þessari siðblindu og græðgi sem og þau hafa stjórnast af í mörg herrans ár, og fara að vinna heiðarlega að sínum störfum og hætta allri hræsni og spillingu sem þau hafa valdið sinni þjóð, alveg síðan að þau voru kosinn inn á þing.

Því ef ekkert gerist fljótlega í þeim málum sem þjóðin hefur kallað eftir af þeim stjórnvöldum sem eru inni á þing nú á dögum, þá mega þau búast við því að þjóðin óski eftir nýjum kosningum, sem og þjóðin er nú þegar farin að gera vegna vantraust stjórnvalda sem leika sér að hundsa aðalvanda þjóðarinnar, sem eru heilbrigðismálin og launatekjur margra verkamanna og lágtekjueinstaklinga hér á landi. Þannig vonandi þjóðarinnar vegna, fara stjórnvöld að gera það sem þau voru kosin hverju sinni til að gera, að lagfæra þann skaða sem þau inni á þing eru svo dugleg við að hundsa, sem og þau voru ekki ráðin af þjóðinni til að gera, því jú það er þjóðin sem borgar stjórnvöld til að vinna fyrir þjóðina, enn ekki að vinna gegn þjóðinni sem og stjórnvöldin nú á dögum eru búin að vera svo dugleg við að gera hverju sinni. Því ef stjórnvöldin læra þá heiðarlegu siðareglu að hlusta á vanda þjóðarinnar hverju sinni, en ekki hundsa þann vanda, þá mega þau búast við því að þjóðin læri með tímanum að treysta þeim aftur, sem og þau vita að þjóðin treystir þeim ekki vegna þeirra spillingar sem hefur valdið þjóðinni mikinn skaða nú á dögum sem og þjóðin þarfnast ekki af stjórnvöldum. Þannig lærið þá heiðarlegu virðingu til ykkar kjósenda og þá munu kjósendur læra að virða ykkur kæru stjórnvöld, því þetta er það sem þjóðin þarfnast af ykkur hverju sinni, það er að segja ef þið yfir höfuð viljið fá aftur virðingu og traust til ykkar þjóðar.

Kær vonar kveðja til betri framtíða,
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband