Kæri Guðni Th. Forseti lýðveldisins!!!

kaeri_gu_ni_th_forseti.jpg

Af þeirri þjóðsögu sem maður hefur lært, þá er Forseti lýðveldisins okkar svokallaða æðra vald, sem er stjórnarskrá skipaður til að fara eftir skipun okkar æðra Stjórnarskrá lýðveldisins, sem er búin að vera vel illa löskuð útfrá allskonar ójafnræðis lögum, sem stangast á við okkar núverandi stjórnarskrá sem margir þekkja sögu þeirra atburða hvernig sú alveldisskrá varð til, sem maður þarf ekki að rekja sögu þeirra atburða hvernig hún fæddist. Enda á forseti lýðveldisins að þekkja hvað okkar æðra stjórnarskráveldi hefur að segja útfrá jafnræðislögum, þar sem okkar jafnræðis ákvæðisskipun fékk sitt veldi árið 1995 til að virða alla sem jafna, sem því miður er ekki að gerast á okkar þriðju tilraun til að kalla eftir réttlæti.

Því við jafnræðið sem köllumst vandræðið eftir réttlæti, er því miður löskun okkar þjóðar útfrá aflandseyjar RÚV kastljós uppljóstrunum, þeirri skandalsskömm, þar sem þúsundir mótmæltu og kröfðust eftir gagnsægi stjórnvalda til að sjá eftir sínum afleyðingum. En nú eftir áfalla skömm okkar þjóðar, þá veist þú útfrá þínu stjórnarskrá skipunum, í hvaða veldi þú varst kosin í, sem eiga að vera virtir án aðgreiningar öllum þeim sem skulu vera jafnir fyrir lögum.

Að þær klúðurskandal stjórnir sem hafa verið í fréttum útaf Panama, þar sem þrjú af þeim Panama valdamönnum eru jú víst aftur komin til valda, og hafa jú víst ekki ennþá svarað til dómsvalda fyrir þær sakir sem margtalað er um þeirra skömm, þar sem þau árið 2013 lofaðu auðvitað gull og græna skóga, með stór fallblekkingum, sem fá víst að komast upp með hvað má segja nú orðið upp með allt, bara á meðan þau komast upp um það.

Því ef þú ert réttlátur forseti gagnfart þínu eigin lýðveldis þjóð, gerðu þér þann stór hjartagreiða, virtu lýðræði þitt, nema þér sé sama um alla þá sem eiga víst að vera jöfn. En fyrir hvaða svo kallað ójöfnunar lögum?

Allt þetta er mjög erfitt að ákveða. En þitt er víst orðið valdið til að hafa visku af hverju þú varst kosin. Var það ekki aðallega út af því að lýðveldið er ekki virt gagnfart stjórnarskránni?

Þitt er auðvitað hausverk valið hvernig þú virðir jafnræði þitt. Þannig hugsaðu vel um þitt lýðveldi og hugsaðu vel um alla þá sem skulu vera jöfn fyrir lögum. Það getur verið strembið erfitt. En með réttri visku, þá lærir maður. Þannig lærðu að virða þína lýðveldis þjóð, kæri forseti, því við öll eigum jú víst það réttlæti að vera jöfn fyrir öllum lögum.

Kær kveðja eftir réttlátri virðingu fyrir Ísland,
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragna Birgisdóttir

Heyr heyr!

Ragna Birgisdóttir, 2.11.2016 kl. 15:14

2 identicon

Forsetinn er ekki skipaður af stjórnarskránni, hann er kjörinn af kosningabæru fólki í landinu.

Allir eru jafnir fyrir lögunum, þannig var það við upphaf lýðveldisins (og áður) og breyttist ekki árið 1995 þótt jafnræðisreglan hafi komið inn þá, hún snýr að öðrum málum.

En jú, allir eru jafnir fyrir lögum sem þýðir að allir skulu vera saklausir þar til sekt er sönnuð. Ekki hefur tekist að sanna skattsvik (það er ekki ólöglegt að eiga aflandsfélag) á þessa einstaklinga sem komu fram í panamaskjölunum, og því eru þeir kjörgengir. Grundvallaratriði sem stjórnarskráin tekur vel á.

Ekki veit ég hvar þú hefur það að Guðni hafi verið kosinn vegna þess að lýðveldið var ekki virt gagnvart stjórnarskránni, eftir því sem ég best veit var hann kosinn vegna þess að flestir treystu honum betur til að gegna þessu embætti heldur en kjánalegum vörubílstjóra með mikilmennskubrjálæði, hamborgaragrillara og rithöfundi sem hefur ekki lyft litla fingri í áratug eða svo.

Þjóðin kýs fólk á Alþingi og hver og einn hefur eitt atkvæði, það kallast lýðræði. Sá flokkur sem fær flest atkvæði fær, eðli máls samkvæmt, tækifæri til að mynda ríkisstjórn með öðrum flokkum sem myndu saman mynda meirihluta á Alþingi, þ.e. fólk sem meirihluti þjóðarinnar kaus til að verða handhafi löggjafara og/eða framkvæmdarvalds, það kallast lýðræði.

Menn geta svo verið sáttir eða ósáttir með niðurstöður kosninga, en þetta er gallinn við að búa í lýðræðisríki, maður stjórnar þessu ekki einn.

Gunnzo (IP-tala skráð) 3.11.2016 kl. 01:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband