Hverjir eru forsetaframbjóðendur 2016?

ar-160528778.jpg

Alveg frá því að forsetaframboðið byrjaði þegar fyrsta tilkynning um frambjóðendurna kom fram, þann 1 janúar 2016, samkvæmt upplýsingum RÚV að á þeim tíma þá hafi tveir ætlað sér að bjóða sig fram til forsetakosninga, þau Þorgrímur Þráinsson og Elísabet Jökulsdóttir. Og deginum eftir, þann 2 janúar þá tilkynnti Ástþór Magnússon að hann ætlaði að bjóða sig fram. Og því næst þann 3 janúar tilkynti Árni Björn Guðjónsson að hann ætlaði að bjóða sig fram. Og þann 22 janúar bættist Ari Jósepsson við í forsetaframboðið. Og eftir það, þann 27 febrúar var tilkynnt að um 20 frambjóðendur hafi hugsanlega ætlað sér að bjóða sig fram, en að minnst 10 af þeim frambjóðendum hafi lýst því yfir að þau ætli sér að bjóða sig fram. Og því næst þann 3 mars bætist Heimir Örn Hólmarsson við. Og þann 6 mars bætist Vigfús Bjarni Albertsson við. Og þann 17 mars bætist Halla Tómasdóttir við. Og næsta dag, þann 18 mars bætist Bæring Ólafsson við. Og því næst, þann 20 mars bætist Hrannar Pétursson við. Og þann 22 mars bætist Guðrún Pálsdóttir við. Og þann 27 mars bætist Hildur Þórðardóttir við. Og þann 29 mars bætist Guðmundur Franklín Jónsson við. Og þann 10 apríl bætist Andri Snær Magnason við. Og að lokum þann 18 apríl bætist Benedikt Kristján Mewes við sem forsetaframbjóðandi. Og því næst á sama dag, þann 18 apríl, þá tilkynnir Ólafur Ragnar Grímsson núverandi sitjandi forseti Íslands að hann ætlaði sér að gefa kost á sig aftur. Og eftir þær tilkynningar að Ólafur Ragnar hygðist ætla að bjóða sig aftur fram, þá voru margir forsetaframbjóðendur sem lýstu sínum áhyggjum yfir því að bjóða sig fram og ákváðu þar með að hætta við sitt framboð vegna Ólaf Ragnars Grímssonar sitjandi forseta.

Svona í grófum dráttum byrjaði forsetaframboð þeirra sem lýstu því yfir að þau ætluðu sér að bjóða sig fram, sem endaði með þeim ósköpum að margir af þessum frambjóðendum hættu við, vegna ákvarðanir Ólafs Ragnars Grímssonar þegar hann tilkynnti að hann ætlaði sér að halda áfram sem forseti Íslands, sem og Ísland veit nú í dag að svo verður ekki, eftir að Ólafur Ragnar tilkynnti þann 9 maí eftir Panamaskjalaklúðurmálsins að hann ætli sér að hætta að bjóða sig fram sem forseta. Þannig nú í dag, þá eru 9 forsetaframbjóðendur sem eru að bjóða sig fram, af öllum þeim fjölda sem fyrst byrjuðu að hugsa sig um að bjóða sig fram til forsetakosninga.

Þannig hverjir eru þessi 9 forsetaframbjóðendur sem eru núna í dag að bjóða sig fram?

Þau heita eftir stafrófsröð, Andri Snær Magnason, Ástþór Magnússon, Davíð Oddsson, Elísabet Jökulsdóttir, Guðni Th. Jóhannesson, Guðrún Margrét Pálsdóttir, Halla Tómasdóttir, Hildur Þórðardóttir, og að lokum Sturla Jónsson. Þetta eru þau 9 sem ætla að bjóða sig fram, sem og fjögur af þeim hann Guðni Th. Jóhannesson, Davíð Oddsson, Andri Snær Magnason og nú fyrir stuttu bætist Halla Tómasdóttir við, sem og Íslenskir kjósendur hafa fengið miklar skoðunarkönnunartilkynningar yfir, á meðan fimm af þeim, þau Ástþór Magnússon, Elísabet Jökulsdóttir, Guðrún Margrét Pálsdóttir, Hildur Þórðardóttir og að lokum Sturla Jónsson eru vel hýst útí í horni af stórfjölmiðlum sem vísvitandi hafa ekki lagt sig fram í að tilkynna og auglýsa almennilega þessa frambjóðendur jafnt, sem og spurt er: „Af hverju eru ekki allir sem skulu vera jafnir fyrir lögum af þessum forsetaframjóðendum ekki búin að fá jafnmiklar tilkynningar og auglýsingar eins og þau sem mest fá þá athygli, því eru stórfjölmiðlar vísvitandi að villa til fyrir kjósendum hverjir allir forsetaframbjóðendurnir eru með því að sigta út hverjir munu fá mestu skoðunarkönnunartilkynningu?“.

Því alveg síðan að fyrsta forsetaframbjóðendurnir buðu sig fram og Ólafur Ragnar Grímsson sagði af sér framboðið, þá byrjuðu stórfréttafjölmiðlar að fjalla mest um Guðna Th. Jóhannesson og því næst Davíð Oddsson og Andra Snær Magnason, sem og en í dag þá fá þeir mestu tilkynningu og auglýsinga heilaþvottaskoðunarkönnunarumfjöllun af öllum þeim forsetaframbjóðendum sem eru að bjóða sig fram. Því ef maður skoðar þá mest lesnu fjölmiðla á netinu alveg síðan að Ólafur Ragnar Grímsson tilkynnti þann 9 maí sína afstöðu að hætta við, við að hætta við, við að hætta við að bjóða sig fram sem forseta. Þá hafa stórfréttafjölmiðlar séð fyrir sér að tilkynna þessa þrjá áðurnefnda forsetaframbjóðendur þá Guðna Th. Jóhannesson, Davíð Oddsson og Andra Snær Magnason, og séð fyrir því að restin af frambjóðendunum fái litla sem engar tilkynningar og auglýsingar eins og þessir þrír forsetaframbjóðendur hafa fengið, sem og útfrá stjórnarskrá er brot á jafnræðisreglunni að þessir stórfréttafjölmiðlar hafi ekki og því miður gera ekki en í dag við að tilkynna og auglýsa ekki alla forsetaframbjóðendurna jafnt. Því þann 8 maí, þá byrjaði Davíð Oddsson að bjóða sig fram til forseta, og eftir það byrjuðu fréttafjölmiðlar að fjalla meira um Davíð Oddsson, Guðna Th. Jóhannesson og af og til Andra Snær Magnason.

Þannig núna í dag á meðan forsetaframbjóðendurnir eru ennþá að bjóða sig fram, þá hafa stórfréttafjölmiðlar bætt við einni manneskju við, hana Höllu Tómasdóttur til tilkynningar og auglýsingar, á meðan restin af forsetaframbjóðendunum hafa litla sem enga umfjöllun fengið eins og þessir fjórir frambjóðendur sem fengu sitt sér viðtal á Stöð 2 til að tilkynna sitt framboð, á meðan restin var skilin eftir því þau skoruðu ekki nógu vel í þeim heilaþvottaskoðunarkönnunum sem stórfréttafjölmiðlar hafa vel auglýst má orðið segja daglega til sinna kjósenda sem standa nú á haus og sem vita ekkert um alla frambjóðendurna vegna vinsældir þeirra skoðunarkönnunar sem sigtaði þá frambjóðendur úr því viðtali sem Stöð 2 hélt þann 26 maí, sem DV lagði fram skoðunarkönnun eftir það viðtal og spurði: „Taktu þátt í könnun: Hver stóð sig best í kvöld?“, semsagt hverjir af þessum fjórum forsetaframbjóðendum sem komu fram í viðtali Stöðvar 2 stóðu sig best, á meðan kjósendur fengu bara þessa fjóra forsetaframbjóðendur til valkosta á meðan hinir fimm frambjóðendurnir voru vel skyld útundan bara útaf því að þau skoruðu ekki nógu vel í þeim heilaþvottaskoðunarkönnunum sem stórfréttafjölmiðlar fjalla orðið daglega um, með þeim slagorðum að annaðhvort Guðni Th. Jóhannesson sem með mestu stigagjöfina, á meðan Davíð Oddsson er með næst mestu stigagjöfina, og því næst Andri Snær Magnason og Halla Tómasdóttir í neðsta sæti á þessum heilaþvottaskoðunarkönnunum sem margir kjósendur bókstaflega trúa á og ætli sér að kjósa eftir þeim vinsældar skoðunarkönnunum sem stórfréttamiðlar mata orðið daglega til Íslenska kjósendur, án þess þó nokkuð að sjá af sér og tilkynna og auglýsa alla forsetaframbjóðendurna jafnt.

Þannig hverjir eru allir þessir forsetaframbjóðendur?

Samkvæmt stafrófsröð, þá ætla ég sem skrifa hér, að fjalla um alla þá frambjóðendur sem eru að bjóða sig fram. En ekki á þann hátt, eins og stórfréttafjölmiðlar gera, að skilja útundan þá forsetaframbjóðendur sem eru að bjóða sig fram, heldur ætla ég að fjalla um alla frambjóðendurna útfrá þeim upplýsingum sem maður hefur grafið upp hverjir allir þessir frambjóðendur eru. Eitt veit maður, að ekki getur maður lagt fram allar upplýsingar á einni bloggsíðu um alla frambjóðendurna, þannig í hnotskurn þá mun ég leggja mig fram í að segja frá öllum forsetaframbjóðendunum.

Þannig sá fyrsti er Andri Snær Magnason rithöfundur og náttúrunandi, sem byrjaði að bjóða sig fram þann 10 apríl 2016. Hans hugsjón er að vernda náttúruperlur Íslands og kynna Ísland útfrá þeirri hugmyndarfræði að það ber að vernda náttúruperlur Íslands. Og því næst vill hann vernda Íslenska tungu og er hlynntur beinu lýðræði og vill fá nýju stjórnarskrána samþykkta af þjóðinni sem þjóðfundur og stjórnlagaráð gerði á sínum tíma, til að fá inn verndunarákvæði auðlinda í þeirri stjórnarskrá samþykkta, því hans mesti áhugi er náttúra Íslands og auðlindir þess sem Ísland hefur uppá að bjóða.

Því næst er Ástþór Magnússon sem er að bjóða sig fram í fjórða sinn til forsetakosninga, sem og byrjaði að tilkynna sitt framboð til forseta þann 2 janúar 2016. Hans hugsjón er að virkja Bessastaði, þar sem Friður 2000 og hans boðskapur og hrakfallaspádómar vilja koma í veg fyrir hugsanlegu stríðsástandi sem gæti gerst hér á Íslandi ef hann fengi umboð á Bessastöðum til að sporna gegn þeim spádómum sem hann boðar til sinna þjóðar. Hann Ásþór hefur hingað til ekki verið kosinn inná Bessastaði þau skipti sem hann hefur boðið sig fram, vegna hans áróður við að ná fram athygli með þeim spádómsboðskapi sem hann segist hafa varað Íslendinga við á sínum tíma, svo sem efnahagshrunið 2008 og græðgivæðinguna sem við Ísland stöndum í nú á okkar dögum. Hingað til hef ég sem skrifa þessa grein hér, átt mjög erfitt með að skilja Ástþór, að minnstakosti þegar hann kemur fram við Ísland sem spámaður sem segist hafa varað við öllum þeim hörmungum sem við Íslendingar lentum í og stöndum í nú á okkar dögum. Því spurningin er sem mig langar að leggja fram til Ásþórs ef hann mun lesa þennan Pistil: „Ert þú Ástþór Magnússon spámaður eða forsetaframbjóðandi?“. Því það er margt gott sem hefur komið fram hjá Ástþóri, svosem þegar hann mótmældi og gerir ennþá yfir því að stórfréttafjölmiðlar séu ekki að standa sig vel í því að boða fram alla frambjóðendurna jafnt. En restin af hans framboði, þá hefur maður ekki séð Ástþór sem forseta hér á Íslandi. En það þýðir ekki að hann geti ekki verið sem forseti Íslands, heldur vegna þess að fyrir kjósendum þá er hann sem dulin ráðgáta sem bíður svo sem ekkert nýtt fram nema hrakvallaspádóma að ef hann fái ekki að vera sem forseti Íslands, þá má búast við hinu og þessu sem hann spáir yfir okkur Íslendinga. Því það eina sem hann rótækilega bíður uppá, er jú að virkja Bessastaði sem friðardúfu, sem er ekki slæmt, en samt þarf að vera meira í boði til að við Íslendingar höfum áhuga á því að vilja kjósa Ásþór sem forseta Íslands.

Þannig næsti frambjóðandi er Davíð Oddsson sem bauð sig fram til forseta þann 8 maí 2016. Hann er mest þekktur sem stjórnmálamaður Sjálfsstæðisflokksins, seðlabankastjóri og nú á dögum sem ritstjóri Morgunblaðsins þar sem hann skrifar sína morgunpistla og boðar fram sínar skoðanir yfir því hvernig hann sér Ísland í hnotskurn útfrá hans stjórnmálalífi þegar hann var sem stjórnmálamaður og sem seðlabankastjóri á sínum tíma þegar honum var sagt upp því starfi árið 2009. Hans áhugi til að virkja Ísland inni á Bessastöðum er að leifa fólkið í landinu að velja úr því hvernig hann sem forseti á að koma fram sem forseti Íslands. Hann Davíð Oddsson hefur verið mest umdeildur maður, eftir efnahagshrunið 2008 þegar hann var seðlabankastjóri á þeim tíma og var hrakinn úr því starfi árið 2009. Eftir það tók Davíð Oddsson við ritstjórnarstöðu Morgunblaðsins og hefur barist með pennanum í að skrifa um sitt sakleysi útfrá þeim ásökunum sem hann hefur lent í eftir efnahagshrunið 2008 og þegar honum var vísað úr starfi seðlabankans. Sjálfur segist hann að hann sé blásaklaus á meðan Eva Joly vildi draga Davíð Oddsson til ábyrða fyrir þann skaða sem við Ísland lentum í árið 2008, sem og gerðist ekki, enda slapp Davíð Oddsson vel á meðan Geir Haarde fyrrverandi forsætisráherra var dregin til landsdóma fyrir þann verknað sem Eva Joly vildi draga Davíð Oddsson til ábyrða, sem og Davíð Oddsson slapp mjög vel við, vegna hans áhrifastöðu sem hann hafði á þeim tíma. Sem hefur valdið þess, að margir Íslendingar klóra vel hausinn og spyrja sjálfa sig: „Er nú ekki orðið nóg komið Davíð Oddsson, ertu ekki búin að gera nóg skandal af þér að þú sért að fara að bjóða þig fram sem forseta Íslands, láttu þig dreyma Davíð Oddsson, því hver vill sjá þig á Bessastöðum?“. Því af stöðu Davíð Oddssonar, þá er hann ekki mjög vinsæll og ekki treystandi til að sinna því áberandi starfi að vera forseti. Því hverjum er efnahagshrunið 2008 að kenna, leifum Davíð Oddsyni að svara því: „Ætli það sé ekki okkur öllum, nær og fjær, er það ekki?“, semsagt, það er öllum Íslendingum nær og fjær að kenna að hrunið skall á, sem þýðir, að allir aldraðir, öryrkjar, lágtekjuhópar og börn, það er þeim að kenna að hrunið skall á Íslandi vegna þess að þau áttu enga peninga til að valda því hruni, en samt er það þeim að kenna einsog Davíð Oddson orðar það: „Ætli það sé ekki okkur öllum, nær og fjær, er það ekki?“.

Þannig næsti frambjóðandi er Elísabet Jökulsdóttir sem bauð sig fram til forseta þann 1 janúar 2016. Hennar framboð er um öryrkja, geðsjúkra, fíkla, þeirra sem sæta ofbeldi, flóttamanna, ef brotin eru mannréttindi á einhverjum, málefni kvenna, barna, gamalmenna, og því næst hefur hún áhuga á stjórnarskránni nýju, vísindum, náttúrunni, sjónum, og vil helst fara í fjöru á hverjum degi og finna eitthvað skrítið, frelsi, og tímanum, að við höfum tíma hvort fyrir annað og séum ekki þrælar tímans.

Því næst er Guðni Th. Jóhannesson sem bauð sig fram þann 5 maí 2016. Og hans framboð er að bjóða sig fram sem fulltrúi allra, óháður, hjálpsamur, og vingjarnlegur. Guðni er vel þekktur fyrir skoðanir sínar á stjórnmálum og hefur þar með skrifað um þau mál og talað um þau áður í fjölmiðlum. Hans skoðun á nýju stjórnarskránni er að leifa þjóðina að hafa síðasta orðið á þeim málum. Og alveg síðan að hann byrjaði sitt framboð, þá hafa stórfréttafjölmiðlar verið mjög límdir að honum, þannig þjóðin hefur fengið að kynnast hans stefnu meira en aðrir forsetaframbjóðendur. Þannig af hans forsetaframboði að segja, þá eru víst stórfréttafjölmiðlar mjög dugleg við að kynna Guðna sem hafa mjög mikinn áhuga við að vilja sjá hann inni á Bessastöðum eins og auglýsingaherferðirnar sína nánast á hverjum degi nú orðið.

Þannig næsti frambjóðandi er Guðrún Margrét Pálsdóttir sem bauð sig fram þann 22 mars 2016. Hún Guðrún var starfandi á sínum tíma í ABC barnahjálp og er kristinnar trúa og hefur lagt sína hönd í því starfi að hjálpa fólki í vanda og fátækt. Hennar áhugi er að virkja Bessastaði til góðgerða og vill þar með hafa Bessastaði til starfsemi fyrir þá hjálpastarfsemi. Og hugur Guðrúnar að nýrri stjórnarskrá er að það mætti laga eitt og annað svo sem um kjörgengi forseta og bæta inn greinum, svo sem um náttúruvernd, þjóðareign á auðlindum og þjóðaratkvæðagreiðslur og vill þar með ekki gefa afstöðu til stjórnarskrárbreytinga sem aðrir eiga að taka ákvörðun um.

Því næst er Halla Tómasdóttir sem bauð sig fram þann 17 mars 2016. Halla bauð sig fram með þá hugsjón að Bessastaðir sé opinn umræðuvettvangur fyrir þjóðina og sem vil vinna að jafnrétti fyrir alla, öflugu og fjölbreyttu menntakerfi, og sköpun og frumkvæði á öllum sviðum okkar samfélags.

Því næst er Hildur Þórðardóttir sem bauð sig fram þann 1 janúar 2016. Hennar starf er sem heilari og rithöfundur. Og hennar einkunnarorð að forsetaframboðinu er samvinna, skilningur, kærleikur, samkennd og auðmýkt. Og hún er mjög hlynnt því að nýja stjórnarskráin fái sitt gildi og vill þar með greiða götu til þess að fólkið á Íslandi hafi sínar skoðanir yfir þeim efnum.

Þannig að lokum þá er það Sturla Jónsson sem bauð sig fram þann 25 ágúst 2015. Hann Sturla er vel þekktur af þjóðinni fyrir Vörubílstjóramótmælunum vorið 2008 og hefur lagt sína baráttu gegn því óréttlæti þegar traðkað er á réttindum annarra eftir efnahagshrunið þegar margir lentu í því að missa allt undir sig vegna húsnæðisvanda sem kom yfir marga hér á Íslandi eftir hrunið 2008. Þannig hans framboð snýst aðallega upp á að 65. grein stjórnarskrárinnar sé vel virtur og gætt sé að hagsmunum almennings hér á Íslandi samkvæmt þeirri grein. Hans hugmynd að nýrri stjórnarskrá er að fyrst þurfi að læra að virða núverandi stjórnarskrá áður en farið er í nýjar framkvæmdir að nýrri stjórnarskrá.

Þar með endar þessar löngu og stuttu yfirlýsingar yfir öllum forsetaframbjóðendum, og vona ég sem skrifa þessa löngu grein að eitthvað af þessum upplýsingum geti hjálpað kjósendum að velja úr hver okkar nýi forseti á að vera inni á Bessastöðum í fjögur ár. Maður vildi nú óska þess að maður gæti sagt eitthvað meira um þá frambjóðendur sem stórfréttafjölmiðlar hafa lítið sem ekkert gefið upplýsinga um, því jú við Ísland erum að kjósa um forseta, og að stórfréttamiðlar skuli ekki sjá sinn sóma í því að tala við alla frambjóðendurna jafnt, er sú skömm sem á ekki að líða hér á Íslandi þegar okkar núverandi stjórnarskrá skipar fyrir því að „Allir skulu vera jafnir fyrir lögum“. Þannig vonandi Íslands vegna, verða réttlátar kosningar, að allir frambjóðendurnir fá að segja sínar skoðanir og að Ísland læri nú einhvern tíman að kjósa rétt útfrá þeim upplýsingum sem fjölmiðlar gefa kjósendum hverju sinni.

Þannig gangi ykkur vel kæru kjósendur að kjósa rétt, fyrir framtíð okkar allra, en ekki sumra, því öll erum við jöfn, þannig á framtíð Íslands að byggjast upp að við séum öll jöfn fyrir lögum.

Kær einlægs kveðja til skárri framtíða,
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband