Þegar þingmenn framleiða fátækt!

spilling_2015_til_2016.jpg

Þetta er orðið grátsorgarskömm hvernig okkar sér Íslenska þingmannaútgáfa er orðin gegn lýðveldi Íslands sem bundin er því stjórnarskrárákvæði sem skipar að „Allir skulu vera jafnir fyrir lögum“ sem skiptir engu frá hvaða kynflokki, litarhátt og tungumál sú manneskja upprunalega er uppalin frá, hvort sú manneskja sé ung eða gömul, stór eða lítil, mjó eða feit, ófötluð eða fötluð, gáfnaljós eða stórheimsk eins og sumir vilja dæma aðra, vel háskólamentuð eða engra skólamentuð, sú sem iðkar trú eða sá trúlausi sem trúir engu, ríkasta manneskja í heimi eða fátæk af völdum þingmanna sem styðja við fátækt í sínu landi, sá sem kýs og treystir þingmönnum eða sá sem treystir ekki þingmönnum og vill þar með ekki kjósa lygalubba og svikahrappa sem fara illa með lýðveldi sitt, sem og þýðir í breiðu stjórnmálatungumáli: „Allir skulu vera jafnir fyrir lögum“ sem og Alþingi lýðveldi Íslands býr til hverju sinni útfrá ákvæðum stjórnarskrárinnar.

Því eru allir jafnir fyrir lögum hér á Íslandi samkvæmt stjórnarskrá?

Því það allra frægasta sem Alþingi Íslands gerði fyrir stuttu, í desember ári 2015, var eineltislega að kjósa að aldraðir og öryrkjar fengju ekki afturvirt frá 1. maí 2015 eins og samið var við verkafólk á Íslandi, sem og þingmenn okkar þjóðar vilja harðneita öldruðum og öryrkjum að geta ekki fengið að njóta vegna framleiðslustarfsemi þingmanna við að styðja við fátækt hérna á Íslandi sem og stjórnarskrágrein 65. margskipar fyrir að „Allir skulu vera jafnir fyrir lögum“.

Því af hverju eru aldraðir, öryrkjar og aðrir lágtekjuhópar skyld eineltislega útundan við að fá ekki að njóta þess að geta fengið að lifa mannsæmandi launalífi hérna á Íslandi?

Því alveg frá hruni 2008, upp að okkar dögum, þegar sú sér Íslenska útgáfa af þingmönnum gerðu það risastóra heimsmet í byrjunar ári 2009 sem ennþá er eftir að skrásetja í heimsmetabók, að skerða lífeyristekjur aldraðra og öryrkja sem stjórnarskráin margskipar fyrir að „Allir skulu vera jafnir fyrir lögum“.

Já þann eina lífeyri sem aldraðir og öryrkjar lifa á, sem og aftur var nú nýlega, þann 19. desember 2015. kl. 17:14,  af völdum þrjóskra og hjartalausra 35 stjórnarþingmanna, 18 úr Framsóknarflokk (xB) og 17 úr Sjálfstæðisflokk (xD), sem stunda þá stóriðju árlega að styðja við fátækt hér á Íslandi að neita því í fjárlagafrumvarpi 2016 að aldraðir og öryrkjar fengju ekki afturvirt frá 1. maí 2015 eins og það sem verkafólk fengu nú í desember 2015, því í augum þeirra sem neita að aldraðir og öryrkjar skuli njóta jafnræðis hér á Íslandi, eru nefnilega að margbrjóta gegn stjórnarskrá og öðrum launalögum með því að neita að aldraðir, öryrkjar og aðrir lágtekjuhópar séu ekki „Allir skulu vera jafnir fyrir lögum“ og þar með sjá til þess að þau sem eiga börn svelti útaf kæruleysi þeirra 35 þingmanna sem framleiða fátækt í sínu landi.

Já því miður gleymist það margoft af þingmönnum, að margir af þessum öldruðum, öryrkjum og aðrir lágtekjuhópar eiga því miður börn þótt þeir búa einir og lifa ekki í sambúð, sem og lifa bara á því sem þingmenn skammta þeim hverju ári, sem nú í þessu ári þá er einbúi að lifa á sirka 170-180.000 kr. á mánuði eftir að búið er að draga sirka + 38% skatt af þeim launum, sem og þingmenn vilja með fjárlögum 2016 bara veita 9,7% launahækkun til aldraðra, öryrkja og annarra lágtekjuhópa sem mun vera um 190-200.000 kr. út mánuðinn eftir skatt án afturvirkni frá 1. maí 2015 eins og samið var við verkafólk á Íslandi og við stjórnvöld sem fengu lúxusafturvirt frá 1. mars 2015 með jólabónus, sem þýðir, að aldraðir, öryrkjar og aðrir lágtekjuhópar þurfa á nýja árinu 2016 að halda áfram að lifa á því sem úti frís á meðan þingmenn styðja við fátækt á Íslandi með því eineltislega að neita öldruðum, öryrkjum og öðrum lágtekjuhópum réttlætislaun til að geta lifað á, sem og er skömm þeirra svika þingmanna sem lofuðu árið 2013 að launaskerðing aldraðra og öryrkja skildu lagfærast.

Því hvað annað er hægt að segja þegar 29 þingmenn í fyrsta frumvarpi og 35 þingmenn í öðru og loka frumvarpi neita öldruðum og öryrkjum mannsæmandi launum til lifnaðar með því að semja að 9,7% sé sú allra mesta launaleiðrétting og að aldraðir og öryrkjar verði bara kyngja þeirri leiðréttingu án afturvirkni frá 1. maí 2015 sé ekki annað en stuðningur við fátækt hérna á Íslandi, því hver heilbrigður maður skilur það mæta vel að 9,7% launahækkun til aldraðra og öryrkja mun ekki bæta upp þeirra kjör hérna á Íslandi, því þegar þingmenn árið 2014 samþykktu 3% í fjárlög 2015 til aldraðra og öryrkja, þá sungu þau að þær hækkanir væri réttlát laun, sem í ljós kom að svo var ekki, enda eru margir aldraðir og öryrkjar sem geta staðfest það að lifa á 170-180.000 kr. á mánuði hérna á Íslandi er ekki auðvelt, að minnstakosti ekki þegar þingmenn á sama ári 2015 hækkuðu matvörur uppí 4% sem gerði það kleift að þau 3% sem aldraðir og öryrkjar fengu, gufuðu upp.

Þannig að segja að 9,7% sé sú allra mesta launaleiðrétting sem aldraðir, öryrkjar og aðrir lágtekjuhópar munu fá árið 2016, sem í heildinni hjá einbúa mun vera um 190-200.000 kr. eftir skatt, sé nóg til að lifa á hérna á Íslandi, er nú því miður sá allra versti blekkingarleikur sem þingmenn semja til aldraðra, öryrkja og annarra lágtekjuhópa því hver Íslendingur veit það mæta vel að engin einbúi sem á börn getur lifað á tæp 190-200.000 kr. á mánuði á meðan húsaleiga, reikningar og matvörur leifa það ekki hérna á Íslandi.

Þannig hvað ætla þingmenn að gera í því að sjá til þess að allir sem skulu vera jafnir fyrir lögum fái nú réttlát laun, því ef fjárlög 2016 verða bara 9,7% til aldraðra, öryrkja og annarra lágtekjuhópa þá sýnir það sig að Alþingi Íslands er orðin framleiðslustofnun sem styður við fátækt á Íslandi, því ekki gætu þeir þingmenn sem vinna inni á Alþingi sjálf lifað á þeim tekjum sem þau skammta öldruðum og öryrkjum, og ekki gætu Íslenskt verkafólk sem vita það mæta vel að engin getur lifað á þeim tekjum sem þingmenn skammta eineltislega öldruðum, öryrkjum og öðrum lágtekjuhópum því eins og leigumarkaður og matarnauðsynjar eru á okurháu verði í þessu græðgi landi, þá veit það hver og einn sem vit hefur og skinsemi, að engin getur lifað á tæp 20-60.000 kr. á mánuði sem því miður er afgangur þeirra sem lifa á lágtekjum, því ekki er það bara húsaleiga, reikningar og matur sem aldraðir og öryrkjar borga, heldur undir mörgum tilfellum lækniskostnað og lyf, sem þýðir að tekjurnar munu ekki leifa það að það sé hægt að lifa á hérna á Íslandi.

Þannig hvað ætla þingmenn að gera í þeim málum, er það orðið stefna Alþingi Íslands að skapa fátækt hérna á Íslandi?

Sem því miður sést að svo virðist vera, með því að brjóta gegn stjórnarskrálýðveldisins sem margskipar það að „Allir skulu vera jafnir fyrir lögum“, því ef það er ekki í stefnuskrá þingmanna að framleiða fátækt hérna á Íslandi, sem virðist vera í stefnuskrá Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins sem eru verstu óvinir aldraðra, öryrkja og annarra lágtekjuhópa sem verða á næstu Alþingiskosningum að passa uppá það að kjósa ekki aftur þessa tvo svikaflokka sem fara mjög illa með láglaunafólk, því nú þurfa þingmenn nú á dögum, sem virðist vera alltof seint fyrir Framsóknarflokk og Sjálfstæðisflokk, að fara að sína uppá að þau séu ekki að styðja við fátækt, því nóg er komið af þessu einelti sem þingmenn veita lágtekjuhópum árlega, því ekki kaus Ísland þingmenn til að fara illa með sína þjóð og kjósendur, heldur var hún kosin til að laga vanda þjóðarinnar, sem hefur sýnt sig að þingmenn nú á dögum eru því miður ekki að byggja upp Ísland í réttlæti, heldur að rústa því landi með fátækt á lágtekjuhópum og í þokkabót að rústa heilbrigðiskerfi Íslands með öllum þeim ólögum sem brýtur gegn jafnræði Íslands, því ekki eru það bara þeir ríku sem byggja upp Ísland, heldur allir landsmenn sem stjórnarskráin skipar fyrir að „Allir skulu vera jafnir fyrir lögum“, því þetta er það sem þingmenn ná ekki ennþá að skilja, að við öll erum jöfn og það ber að haga öllum lögum þannig að laun landsmanna skal í lögum tilheyrast því jafnræði.

Sem og því miður þá semja margir þingmenn (aðallega Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur) lýðveldinu til háborinnar skammar ójöfnuð og vanvirðingu, teljandi trú um það að þeir ríku sem kaupa þingmenn (aðallega Framsóknarflokk og Sjálfstæðisflokk) undir borðið með allskonar lögleysi gegn öllum þeim sem skulu vera jafnir fyrir lögum, er sú allra versta martröð sem þingmenn gera gegn sínu föðurlandi, að gerast föðurlandssvikarar og mismuna þeim sem stjórnarskrá lýðveldisins sem hefur margskipað fyrir að „Allir skulu vera jafnir fyrir lögum“.

Því þetta er ekki orðið eðlilegt hvernig gjörspilltir þingmenn á nútíma öld misbjóða öldruðum og öryrkjum með því að margbrjóta gegn ákvæði stjórnarskrárinnar sem skipar fyrir því að „Allir skulu vera jafnir fyrir lögum“, með því að vilja ekki leifa þeim hópi sem lifa á smánarlaunum að fá afturvirt frá 1. maí 2015 eins og samið var við verkafólk og þingmenn, því með þessu þá eru þingmenn (aðallega Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur sem vinna ekki með öldruðum, öryrkjum og öðrum lágtekjuhópum) því miður að styðja við fátækt hérna á Íslandi, bara við það eitt að vilja ekki leiðrétta betur launakjör þeirra sem minnst eiga.

Þannig kæru þingmenn, hættið nú að margbrjóta gegn lýðveldinu með öllu því lögleysi sem mismunar alla sem skulu vera jafnir fyrir lögum, því til að Ísland byggist nú einhvern tíman upp sem jafnræðisríki, þá þurfa öll lög að byggjast upp á því jafnræði, þannig vonandi lærir Alþingi okkar þjóðar einhvern tíman að virða, því þannig mun Alþingið líka fá virðingu aftur til baka, það er að segja að ef þingmenn nú á dögum vilja að Ísland skuli njóta þess réttindi að „Allir skulu vera jafnir fyrir lögum“, sem lítur út útfrá Framsóknarflokk og Sjálfstæðisflokk að þeir flokkar eru ekki fyrir þá hópa sem lifa á láglaunum hérna á Íslandi, sem sýnir okkur Íslendingum að þessir flokkar eru að framleiða fátækt á Íslandi, enda eru þeir svikahrappar og stuðningsmenn fátæktar á sínu eigin landi með því að neita láglaunuðum réttlátum launum sem því miður er skömm þeirra 35 hjartalausra þingmanna sem svíkja árlega láglaunuðum mannsæmandi launum til lifnaðar, sem þýðir að Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur eru þeir flokkar sem stunda stjórnarskrábrot gegn öllum þeim sem skulu vera jafnir fyrir lögum, með því að stunda fátæktarframleiðslu gegn láglauna fólki Íslands, því eins og þessi tveir flokkar hafa hegðað sér í undanfarin ár, þá eru þau ekki bara að sverta og svelta láglaunaða, heldur eru þau að hundsa heilbrigðisvanda Íslands með því að hundsa þann vanda árlega, sem segir okkur Íslendingum að þessir tveir flokkar eru ekki að vinna með þjóðinni, heldur gegn henni með öllu því lögleysi sem því miður er sorglegt að þessir tveir flokkar séu sökudólgar þess að rústa Íslandi í bullandi ójöfnuð sem stjórnarskráin skipar fyrir að „Allir skulu vera jafnir fyrir lögum“.

Þannig vonandi þjóðarinnar vegna læra þeir gjörspilltustu þingmenn, Framsóknarflokkur (xB) og Sjálfstæðisflokkur (xD), sem létu þjóðina blekkja sig í að kjósa sig að fara að virða kjósendur sem trúðu svik þeirra sem margbrjóta gegn lýðveldinu sem stjórnarskráin margskipar að „Allir skulu vera jafnir fyrir lögum“, sem og maður er farinn að sjá, að þeir flokkar munu ekki læra neitt, enda kann sá flokkur ekki að virða þjóðina sem lét svíkjast af þessum flokkum sem lofuðu árið 2013 að lagfæra launavanda þeirra sem minnst eiga, vegna kvikindisblekkinga þeirra svikaflokka sem kann ekki að virða jafnræði sinna þjóða sem kaus þau fyrir þau loforð að bæði laun þeirra sem minnst eiga skildi lagast og vegna heilbrigðisvanda þjóðarinnar sem þessir gjörspilltu þingmenn eru því miður að sjá til að fara illa með án þess að gera eitthvað í því sem þau lofuðu þjóðinni, því á meðan láglaunaðir lifa í fátækt vegna framleiðslu starfsemi þessara svikaflokka, þá því miður eru þessir flokkar þjóðinni til margskammar bara við það að stunda stjórnarskrábrot á allt jafnræðið.

Því ef þessir svikaflokkar fara nú ekki að læra að virða sína þjóð almennilega, þá því miður verða þau vanhæfu þingmenn að fara að segja upp sínu starfi, því eitt gleyma þessir flokkar, að þau eru ekki bara að vinna fyrir þá ríkustu sem kaupa lögleysi gegn jafnræði Íslands, heldur fyrir alla sem stjórnarskráin er búinn að margskipa fyrir að öll lög skulu tilheyrast öllum enn ekki bara sumum einsog þessir spilltu flokkar vilja daglega halda þegar þau vísvitandi brjóta gegn stjórnarskránni sem skipar þess að „Allir skulu vera jafnir fyrir lögum“.

Að lokum kæru lesendur, munið eftir þessum flokkum sem sviku ykkur, því nóg er komið af þessari kaldhæðni sem þessir flokkar gera daglega gegn sínu jafnræði sem þau eru því miður dugleg að fyrirlíta sér til kvikindisskemmtunar án blygðunar þess skaða sem þau valda sinni þjóð, þannig vonandi krefst þjóðin réttlætis áður en þessir velspilltu þingmenn rústa Íslandi sem er bundin jafnræðisákvæði stjórnarskrárinnar að „Allir skulu vera jafnir fyrir lögum“.

Kær vonar kveðja til betri framtíða,
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Flott samantekkt, en allt allt allt of löng lesning um það sem raunverulega er að gerast. Fátæktargildra sem búið er að koma öldruðum, öryrkjum og láglaunaþegum í á árinu 2015 er staðreynd það lifir engin af minna en 250 þúsund á mánuði sem ekki á frítt heimili og reynir að reka sinn bíl.

Sigurður Haraldsson, 23.12.2015 kl. 20:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband